26.10.1972
Sameinað þing: 8. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í B-deild Alþingistíðinda. (151)

Umræður utand dagskrár

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég ætla ekki að beina neinni fsp. til hæstv. forsrh., en að gefnu tilefni, þar sem hæstv. sjútvrh. tjáði sig með þeim hætti, sem hann gerði, — hann sagði sem svo, að það væri ekkert við því að segja, hvernig forsrh. tjáði sig um þessi mál, sem verið var að ræða í Ed. í gær, þ.e. um lausn eða aðgerðir í efnahagsmálunum, og svaraði síðan út í hött spurningum, sem til hans var beint, — þá vil ég spyrja einnar spurningar og beini henni til hæstv. sjútvrh., og hún er ósköp einföld: Er hann sammála persónulegum skoðunum forsrh. um aðgerðir í efnahagsmálunum eða ekki?