27.03.1973
Sameinað þing: 62. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2791 í B-deild Alþingistíðinda. (2153)

Rannsókn kjörbréfs

Fram. (Matthías Á. Mathiesen) :

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til meðferðar kjörbréf 2. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík., frú Geirþrúðar H. Bernhöft, en eins og fram kom hér áður, hefur hv. 6. þm. Reykv., frú Auður Auðuns, óskað fjarvistarleyfis vegna veikinda. Á þingi situr nú. 1. varaþm. flokksins í þessu kjördæmi, Birgir Kjaran hagfræðingur. Kjörbréfanefnd hefur samþ. að taka kosninguna gilda og mælir með því, að kjörbréfið verði samþ.