31.10.1972
Neðri deild: 8. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (252)

30. mál, leigunám hvalveiðiskipa

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Það má segja, að heimild brbl. hafi verið beitt, þ.e.a.s. það var tekin ákvörðun samkv. þeim um að taka þetta eina skip leigunámi. En þegar sú ákvörðun lá formlega fyrir, náðust frjálsir samningar. Ég vil aðeins taka þetta fram.