09.04.1973
Neðri deild: 82. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3223 í B-deild Alþingistíðinda. (2706)

202. mál, almenn hegningarlög

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Þetta mál hefur hlotið afgreiðslu í hv. Ed. N. hefur athugað málið og mælir með samþ. þess. Hv. þm. Ellert B. Schram var fjarstaddur við afgreiðslu málsins.