19.12.1973
Neðri deild: 50. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1666 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)

159. mál, Seðlabanki Íslands

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég tel að ýmsu leyti eðlilega till. hv. þm. Hins vegar tel ég óeðlilegt að blanda henni inn í þetta mál. Ég veit ekki annað en hv. þm. hafi flutt frv., sem liggur fyrir þinginu, í þessa veru, og mér finnst eðlilegt, að það mál verði athugað. Ég segi því nei.