08.05.1974
Efri deild: 126. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4340 í B-deild Alþingistíðinda. (3926)

Starfslok efri deildar

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Þá liggur ekki fleira fyrir þessum fundi, og þetta verður væntanlega síðasti fundur í hv. Ed. á þessu þingi. Í tilefni þess leyfi ég mér að bakka varaforsetum og skrifurum fyrir þá ágætu aðstoð, sem þeir hafa veitt mér. Skrifstofustjóra og öllu starfsfólki Alþingis þakka ég fyrir mjög góða þjónustu og óska þeim farsældar í störfum. Hv. þm. d. þakka ég ánægjulega samvinnu og það mikla umhurðarlyndi, sem þeir hafa sýnt mér sem forseta. Ég óska hv. þdm. gæfu og gengis. Utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Lifið þið heil.