13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (466)

361. mál, Landhelgissjóður

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Fsp. mín til hæstv. dómsmrh. er í tveim liðum á þessa leið:

„1. Hvað á Landhelgissjóður mikið óinnheimt

a. af sektarfé íslenskra skipa,

b. af sektarfé erlendra skipa?

2. Hvaða embætti sýslumanna og fógeta eiga þessar skuldir óinnheimtar, og hver er upphæðin hjá viðkomandi embættum hverju fyrir sig?“