21.12.1974
Sameinað þing: 30. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (1131)

Snjóflóð í Neskaupsstað

Lúðvík Jósepsson:

Ég vil fyrir hönd okkar alþm. af Austurlandi þakka hæstv. forseta fyrir hlý og vinsamleg orð í garð fólksins í Neskaupstað sem hann hefur hér mælt. Ég vil einnig þakka hæstv. ríkisstj. fyrir skjót viðbrögð hennar og þær yfirlýsingar sem hún hefur hér tilkynnt og hæstv. forsrh. var hér að flytja. Ég vil um leið þakka öllum hv. alþm. fyrir undirtektir þeirra við það sem hér hefur verið sagt.

Ég veit að það verður gert allt sem unnt er til þess að mæta þeim vanda sem upp hefur komið í Neskaupstað, og ég efast ekkert um að það tjón, sem þarna hefur orðið, verður bætt eftir því sem hægt er að bæta tjón af því tagi sem þarna varð.

Ég endurtek svo þakkir mínar fyrir velvild og samúð allra alþm.