06.02.1975
Sameinað þing: 39. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1515 í B-deild Alþingistíðinda. (1331)
Rannsókn kjörbréfs
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Mér hefur borist eftirfarandi bréf.
„Reykjavík, 5. febr. 1975.
Formaður þingflokks Framsfl. hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Samkvæmt beiðni Gunnlaugs Finnssonar, 4. þm. Vestf., sem nú dvelst erlendis í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Ólafur Þórðarson skólastjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru hans.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Ragnhildur Helgadóttir,
forseti Nd.“
Ég bið hv. kjörbréfanefnd að rannsaka kjörbréf Ólafs Þórðarsonar og fær n. 10 mínútur til umráða.