21.04.1975
Neðri deild: 69. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3049 í B-deild Alþingistíðinda. (2302)

25. mál, meðferð einkamála í héraði

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Það er sama að segja um þetta mál eins og hið fyrra, sem ég mælti fyrir áðan, að það hefur verið til meðferðar hjá hv. Ed. og verið samþ. þar athugasemdalaust við þrjár umr. Það er um breyt. á l. um meðferð einkamála í héraði. Enn fremur er frv., sem fylgir því, um breyt, á l. um vátryggingarsamninga, nr. 20/1954, og er á dagskránni næst á eftir. Þessi frv. varða heimild til að úrskurða bráðabirgðafjárgreiðslu upp í slysabætur jafnhliða dómi um skaðabótaskyldu vegna slysa þegar veitt er heimild réttarfarslaga til að skipta sakarefni þannig að dæmt er um skaðabótaskylduna sér í lagi. Bending í þessa átt var gefin í þál. 8. febr. 1972 um afgreiðslu skaðabótamála vegna slysa.

Dómsmrn. aflaði sér ýmissa grg. og umsagna vegna þál. og óskaði að öðru leyti almennrar athugunar á möguleikum til að hraða meðferð skaðabótamála vegna slysa. Ég vísa til aths. með lagafrv. um þær grg., en taldi ekki ástæðu til þess að prenta þær með þessu litla frv. þar sem þær varða ýmis atriði og að nokkru leyti mjög almenn atriði um að hraða meðferð dómsmála og mörg þau atriði eru áfram til athugunar, ekki síst í störfum réttarfarsnefndar að almennri endurskoðun á réttarfarslöggjöf og dómaskipun, Ég mun hins vegar að sjálfsögðu gera ráðstafanir til þess að senda þeirri n., sem málið fær til athugunar, grg. til skoðunar.

Ég leyfi mér svo, herra forseti, að leggja til að máli þessu verði að umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. allshn.