13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3985 í B-deild Alþingistíðinda. (3246)

122. mál, skipan opinberra framkvæmda

Frsm. (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Allshn. hefur haft till. um endurskoðun á lögum um skipan opinberra framkvæmda til athugunar og leggur til að till. verði samþykkt með nokkurri breytingu. Breytingin er svo hljóðandi:

„Síðasti málsliður tillgr. orðist svo: „Ríkisstj. skal leggja fram á næsta þingi lagafrv. um þetta efni, ef athugun leiðir í ljós að tilefni sé til.“

Nefndin leggur til að till. verði samþykkt með þessari breytingu.