13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4058 í B-deild Alþingistíðinda. (3283)

131. mál, rannsóknir á snjóflóðum og skriðuföllum

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Í örfáum orðum vil ég fagna þessari þáltill., en jafnframt geta þess að undirbúningur er þegar hafinn að þessari rannsókn. Vonandi verður samþykkt þessarar till. til þess að fjármagn fæst til þess starfs. Hér hefur nýlega verið svissneskur sérfræðingur, með þeim fremstu sem til eru hygg ég, og veitt mjög athyglisverðar grundvallarupplýsingar. Þegar er sett á fót nefnd sem er að undirbúa rannsóknarprógramm. En þetta er mjög viðamikið mál, mjög viðamikið, og vil ég ekki á þessum tíma sólarhringsins fara að rekja hina fjölmörgu þætti sem þar koma inn í, en þeir eru margir og er vafalaust að rannsókn á þessu öllu verður mjög kostnaðarsöm. Væntanlega verður samþykkt þessarar till. til þess að tryggja fjármagn til þeirra rannsókna.