15.05.1975
Sameinað þing: 80. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4325 í B-deild Alþingistíðinda. (3541)

236. mál, heimildir Færeyinga til fiskveiða við Ísland

Frsm. (Gils Guðmundsson) :

Herra forseti. Með þáltill. þessari er leitað staðfestingar Alþ. á samkomulagi því sem gert var milli ríkisstj. Íslands og landsstjórnar Færeyja í febrúar s. l. um veiðiheimildir til handa færeyingum innan íslenskrar fiskveiðilögsögu. Utanrmn. hefur fjallað um þessa till. og leggur einróma til að hún verði samþ.