18.12.1974
Neðri deild: 27. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1057 í B-deild Alþingistíðinda. (927)

84. mál, útvarpslög

Magnús Kjartansson:

Hæstv. forseti. Það gegnir alveg sama máli með mig og hv. þm. Magnús T. Ólafsson, að ég tel mig þurfa að ræða þetta mál sérstaklega við hæstv. menntmrh. og einnig bera upp við hann tilteknar spurningar, sem ég tel að sé nauðsynlegt að fá svar við í sambandi við afgreiðslu þessa máls. Ég óska eftir að fá að njóta sömu réttinda og hæstv. forseti bauð hv. þm. Magnúsi T. Ólafssyni, að fá að fresta þessari ræðu minni þar til hæstv. menntmrh. er kominn.