20.12.1975
Sameinað þing: 38. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1591 í B-deild Alþingistíðinda. (1288)

1. mál, fjárlög 1976

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Hér er um að ræða samningsbundið verkefni á milli ríkisstj. Íslands og Tækniaðstoðar Sameinuðu þjóðanna. Það var undir þann samning skrifað í lok ársins 1974 fyrir hönd íslensku ríkisstj. Við þennan samning verður ekki staðið án töluvert aukinnar fjárveitingar, og því segi ég já.