20.12.1975
Sameinað þing: 38. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1595 í B-deild Alþingistíðinda. (1304)

1. mál, fjárlög 1976

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég er sammála rökstuðningi hv. þm. Jóns G. Sólnes, en ég sé formgalla á því að samþykkja þessa till. sem brtt. við fjárlög. Hún er þess eðlis, að hún ætti fremur heima í sérstöku lagafrv. Ég bendi hv. flm. á það formsatriði. Þess vegna tel ég mig ekki geta samþykkt þessa till. vegna formgalla. Ég segi nei.