20.12.1975
Sameinað þing: 38. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1596 í B-deild Alþingistíðinda. (1308)

Þingfrestun

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Þessi fundur er síðasti fundur Alþingis fyrir jólahlé. Í tilefni þess vil ég þakka hæstv. ráðh. og hv. alþm. fyrir ánægjulegt samstarf og umburðarlyndi í minn garð. Bestu þakkir færi ég varaforsetum, skrifurum, skrifstofustjóra og öllu starfsfólki Alþingis. Ég óska hv. alþm. og fjölskyldum þeirra og starfsliði þingsins gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Það er von mín að við megum öll hittast heil til starfa er Alþingi kemur saman í janúarmánuði n. k.