20.12.1975
Sameinað þing: 38. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1596 í B-deild Alþingistíðinda. (1311)

Þingfrestun

Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf : „Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 97. löggjafarþings, frá 20. des. 1975 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 26. jan. 1916.

Gjört í Reykjavík, 19. des. 1975.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum Alþingis, 97. löggjafarþings, er frestað frá 20. des., og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi siðar en 26. jan. 1976.

Ég óska hv. alþm. og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og góðs og farsæls nýárs.