18.05.1976
Sameinað þing: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4518 í B-deild Alþingistíðinda. (4073)

Skýrsla forsætisráðherra um Framkvæmdastofnun ríkisins

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Skýrsla um starfsemi Framkvæmdastofnunar ríkisins 1975 hefur veríð fengin öllum þm. í hendur og ég sé ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þessa skýrslu en í henni sjálfri greinir. Ég vil taka það fram að stjórnendur Framkvæmdastofnunar ríkisins hafa áhuga á því að reyna að koma þessari skýrslu fyrr á borð hv. þm. en verið hefur. Það er að vísu nokkrum erfiðleikum bundið vegna þess hve skýrslan er og þarf að vera ítarleg, en að svo miklu leyti sem til minna kasta kemur, þá mun ég styðja þá í því þannig að undir þessum dagskrárlið megi í framtíðinni takast umr. um starfsemi þessarar stofnunar sem nú er siður tími til.