21.12.1976
Neðri deild: 41. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1587 í B-deild Alþingistíðinda. (1275)

Þingfrestun

Magnús T. Ólafsson:

Hæstv. forseti. Í nafni okkar dm. vil ég færa fram þakkir til forseta fyrir góðar óskir í okkar garð. Ég þakka forseta fundarstjórn og samstarf og vil óska forseta og fjölskyldu hennar gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Einnig vil ég í nafni dm. færa fram þakkir til starfsliðs þingsins fyrir samvinnulipurð og alúð við okkur dm. Ég óska starfsliði þingsins gleðilegra jóla og góðs árs. Ég vona, að við megum öll hittast hér heil til starfa á ný að loknu jólaleyfi, og vil biðja dm. að taka undir þessi orð með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]