09.03.1977
Efri deild: 49. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2504 í B-deild Alþingistíðinda. (1881)

49. mál, opinberar fjársafnanir

Forseti. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Eins og hv. 7. landsk. þm. hefur skýrt frá, var gerð einföld breyting á þessu frv. í hv. Nd. En til þess að gæta fyllsta formlegs réttlætis tel ég að það sé rétt, að sú n., sem hafði málið til meðferðar í þessari d., fái málið til meðferðar áður en d. gengur frá því. Er því umr. nú frestað og málið tekið út af dagskrá.