21.03.1977
Neðri deild: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2690 í B-deild Alþingistíðinda. (2027)

Umræður utan dagskrár

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins í tilefni af orðum hæstv. dómsmrh, taka það fram, að þau ummæli, sem ég viðhafði hér, eru mér fengin í hendur án þess að ég hafi kannað þau. Þau munu að sjálfsögðu verða könnuð eins og önnur atriði þessa máls, og allir viljum við hafa það sem sannara reynist.