03.05.1977
Sameinað þing: 85. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4224 í B-deild Alþingistíðinda. (3290)
232. mál, samþykkt um votlendi
Frsm. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Utanrmn. hefur fjallað um till. til þál. um heimild fyrir ríkisstj. til að fullgilda samþykkt um votlendi sem hafa alþjóðlegt gildi, einkum fyrir fuglalíf. N. varð sammála um að mæla með till. Allir nm. voru á fundinum nema hv. þm. Gils Guðmundsson, en hann hefur tjáð mér að hann sé einnig samþykkur þeirri niðurstöðu n. að till. verði samþykkt.