04.05.1977
Sameinað þing: 86. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4282 í B-deild Alþingistíðinda. (3351)

164. mál, samræming á fjárhagslegum grundvelli framhaldsskóla

Frsm. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur fjallað um till. til þál. um samræmingu á fjárhagslegum grundvelli framhaldsskóla, og birtist álit n. á þskj. 623.

Síðan till. þessari var vísað til fjvn. hefur komið fram hér á hv. Alþ. stjfrv. um framhaldsskóla sem að sumu leyti fjallar um sambærilegt efni og það sem þáltill. á þskj. 316 fjallar um. Það liggur nú fyrir að frv. þetta verði ekki afgreitt á yfirstandandi Alþ. og mun verða í sérstakri athugun til næsta Alþ. Fjvn. telur ástæðu til að það efni, sem um er rætt í þáltill., samræming á fjárhagslegum grundvelli framhaldsskóla, komi einnig til athugunar um leið og stjfrv. um framhaldsskóla. Með hliðsjón af því leggur n. til að till. þessari verði vísað til ríkisstj.