07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 998 í B-deild Alþingistíðinda. (694)

76. mál, greiðslufyrirkomulag úr Fiskveiðasjóði vegna smíða fiskiskipa

Fyrirspyrjandi (Guðmundur H, Garðarsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Í þeim kom m.a. fram að á þessu ári hefði Fiskveiðasjóður ekki getað veitt lán vegna yfirbygginga og lenginga á fiskiskipum eins og gert var á s.l. tveimur árum. Ég tel nauðsynlegt, að þessu sé kippt í lag þannig að sambærileg lánafyrirgreiðsla eigi sér stað vegna þessara verkefna á þessu ári eins og átti sér stað á árunum 1974 og 1975, og vænti þess, að hæstv. ráðh. muni beita sér fyrir því.