15.12.1976
Sameinað þing: 32. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (843)

1. mál, fjárlög 1977

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Þessi till. stuðlar að framkvæmd mikils nauðsynjamáls. Ég geri mér grein fyrir því að á þessu stigi mála mundi þrýstihópur eins og ég teljast háþrýstihópur ef ég freistaðist til þess að greiða atkv. með þessari till. Ég tel hins vegar raunhæfara að láta reyna á það til þrautar hvort ekki næst samkomulag milli umr. um það að ganga svo frá þessum málum að í næsta útboðsáfanga fáist því framgengt að unnið verði í einum áfanga að göngudeild og sjúkradeild fyrir geðsjúka á geðdeild Landsspítalans. Þess vegna tel ég raunhæft að segja nei við þessari till.