15.12.1976
Sameinað þing: 32. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1246 í B-deild Alþingistíðinda. (846)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Hv. 5. þm. Norðurl. e. hefur kvatt sér hljóðs og ég vil mælast til þess við hv. þm. að hann verði mjög stuttorður því að hér er til umr., að mér skilst, mál sem þegar hefur verið lagt fram á Alþ. og ég sé ekki ástæðu til þess að ræða mál utan dagskrár sem þegar hefur verið lagt fyrir þingið og kemur til umræðu innan tíðar. Þess vegna vil ég biðja hv. þm. að vera mjög stuttorðan.