23.01.1978
Sameinað þing: 37. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (1448)
Framhaldsfundir eftir þingfrestun
Forseti (Ásgeir Bjarnason):
Ég þakka hæstv. forsrh, fyrir heillaóskir í garð okkar alþm. og starfsfólks Alþingis. Jafnframt óska ég hæstv. ríkisstj., hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og þakka þeim samstarfið á liðnu ári.
Samkv. bréfi því, sem hæstv. forsrh, las hefjast þingfundir nú að nýju.