09.02.1978
Efri deild: 58. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (1720)

175. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu

Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :

Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt með því að biðjast afsökunar á því að hafa orðið nokkrum mínútum seinni til fundar en skyldi, en það stafaði af umferðarstöðvun á leið minni hingað.

Í gær féllst ríkisstj. eins og kunnugt er, á tillögu- Seðlabankans, að meðalgengi íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðli verði lækkað um 13% frá því gengi sem gilti 3. febr. s. l., en það jafngilti 14.9% meðalhækkun erlends gjaldeyris. Gengisskráning, sem felld var niður frá mánudeginum 6. þ. m., mun þó ekki verða tekin upp að nýju fyrr en að lokinni afgreiðslu þess frv. sem hér er á dagskrá. Frv. er flutt vegna þessarar ákvörðunar og hefur inni að halda ákvæði um tollmeðferð innflutnings og myndun gengismunarslóðs af útflutningsvörubirgðum og ógreiddum útflutningi sjávarafurða og ráðstöfun fjár úr sjóðnum. Ákvæði frv, eru svipuð þeim, sem áður höfðu verið sett í lög vegna breytinga á gengi krónunnar.

Gengisákvörðunin er einn liður í fjölþættum ráðstöfunum sem ríkisstj. beitir sér nú fyrir til þess að tryggja fulla atvinnu, hamla gegn verðbólgu og treysta stöðu þjóðarbúsins út á við.

Eftir launasamningana á síðasta ári varð fljótlega ljóst að þróun efnahagsmála hér á landi hefði að ýmsu leyti tekið óheillavænlega stefnu. Verðbólgan, sem hafði farið smám saman minnkandi undanfarin tvö ár, fór nú ört vaxandi á ný og afleiðingarnar létu ekki á sér standa í vaxandi rekstrarörðugleikum atvinnuveganna og auknum innflutningi. Það var því ljóst, að grípa þyrfti til efnahagsráðstafana til þess að treysta stöðu atvinnuveganna og halda útgjöldum þjóðarbúsins innan við framleiðslugetu þess.

Við afgreiðslu fjárlaga og lánsfjáráætlunar var stefnt að því að halda rekstrarútgjöldum ríkissjóðs í skefjum og draga úr opinberri fjárfestingu, og var það markmið sett fyrir árið 1978 að stöðva frekari aukningu erlendra skulda. Varðandi aðra þætti efnahagsmála hefur farið fram viðtæk athugun á þeim leiðum sem um væri að velja í stjórn efnahagsmála, ef ná ætti þeim markmiðum sem ég hef þegar lýst. M. a. hafa þessar athuganir farið fram á vettvangi verðbólgunefndar s::m nú hefur lokið störfum. Hefur ríkisstj. markað stefnu sína í þessum málum á grundvelli þessara athugana allra.

Ég vænti þess, að á morgun verði til umr. á þingi frv, til l. um efnahagsráðstafanir í framhaldi af gengisbreytingunni og mun ég þar gera nánari grein fyrir almennum viðhorfum í efnahagsmálum og heildarstefnu ríkisstj. til lausnar þeim vanda sem nú er við að etja. Hins vegar hefur það verið samdóma álit allra þeirra, sem best þekkja til, að ekki væri nú annars úrkosta en að breyta genginn nokkuð til lækkunar, hvaða leiðir sem ella yrðu valdar í efnahagsmálum. Gengi íslensku krónunnar var orðið óraunhæft vegna sívaxandi misræmis framleiðslukostnaðar og verðlags hér á landi og í helstu viðskiptalöndum okkar. Gengissig hefur ekki nægt til að jafna þessi met.

Hin mikla hækkun á kostnaði innanlands umfram hækkun framleiðslutekna að undanförnu hefur valdið því, að afkoma útflutningsatvinnuveganna hefur farið versnandi og eru að óbreyttri gengisskráningu engin tök á að standa undir því viðmiðunarverði sem Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins hefur nýlega ákveðið. Í útflutningsiðnaði er við mikla rekstrarerfiðleika að etja og raunar einnig í iðngreinum sem selja framleiðslu sína á innlendum markaði í samkeppni við innflutning. Við þennan vanda hefur svo bæst, að gengi Bandaríkjadollars hefur lækkað töluvert gagnvart öðrum gjaldmiðli síðasta missirið, en verulegur hluti gjaldeyristekna Íslendinga er eins og kunnugt er í dollurum.

Gengisbreytingin er nú höfð eins lítil og fært er talið til þess að verðáhrif hennar verði sem minnst. Mið hefur verið tekið af þeim ráðstöfunum sem ætlunin er að gera til að hemja víxlhækkanir launa og verðlags og verða kynntar á morgun, en án slíkra ráðstafana er gengisbreytingin ein sér skammgóður vermir. Þá er rétt að taka fram, að með þessari gengisákvörðun er ætlunin að víkja frá þeirri stefnu sem fylgt hefur verið síðustu þrjú árin í gengismálum, en á því tímabili hefur verið reynt að varðveita samkeppnisaðstöðu atvinnuveganna með hægfara breytingum á gengisskráningunni. Þótt þessi stefna hafi að ýmsu leyti reynst vel, þá hefur hún óneitanlega haft þann ókost að draga úr aðhaldi um verðlags- og launaþróun hér á landi. Hún hefur ekki heldur reynst þess megnug að jafna metin þegar stórfelldar breytingar verða á innlendum kostnaði, eins og átti sér stað á s. l. ári. Hefur því orðið að ráði að leiðrétta nú gengið í einu skrefi. Jafnframt er ætlun ríkisstj. að stöðva frekara gengissig, þar sem hún telur að stöðugt gengi geti við núverandi aðstæður og í samhengi við aðrar ráðstafanir orðið til þess að draga verulega úr þeirri verðbólguþróun sem náð hefur tökum á hagkerfinu.

Ég mun þá víkja að einstökum atriðum í frv. en meginatriði þess eru, að gert er ráð fyrir að gengismun af útflutningsbirgðum sjávarafurða verði varið til lausnar sérstakra fjárhagsvandamála innan sjávarútvegsins, fyrst og fremst til að efla fjárhag Verðjöfnunarsjóðs, en einnig til að greiða fyrir hagræðingu í fiskiðnaði og létta stofnfjárkostnaðarbyrði fiskiskipa.

Lauslega áætlað er talið, að alls gætu komið um 2100 millj, kr. í gengismunarsjóðinn, og er þá ekki reiknað með tekjum af skreið eða ógreiddum saltfiski, sem seldur var til Zaire, og einnig dregið frá það sem greitt skal samkv. 2. gr. frv. til ríkissjóðs vegna Verðjöfnunarsjóðs. Þetta fé skiptist í aðalatriðum þannig, að Verðjöfnunarsjóður fengi 1300 millj. kr., til að létta stofnfjárkostnað fiskiskipa færu um 450 millj. kr. og til hagræðingar í fiskiðnaði 350 millj, kr., samtals 2100 millj. kr.

Það skal tekið fram, að þær 350 millj. kr„ sem ætlað er til að stuðla að hagræðingu í fiskiðnaði, koma til viðbótar þeim 500 millj. kr. sem ríkisstj. beitti sér fyrir að verði til reiðu sem sérstakt lánsfé frá Byggðasjóði á þessu ári til að bæta fjárhag og skipulag fiskvinnslufyrirtækja. En þau lán eiga á hverjum stað að miða að betri nýtingu hráefnis, fjármagns og starfskrafta, en ekki aukinni afkastagetu. Með þessu ættu möguleikar til að leysa vanda fiskvinnslunnar því að hafa batnað að mun.

Í 1. gr. frv. eru settir frestir um tollafgreiðslu samkv. venju, en að öðru leyti gilda almenn ákvæði tollskrárlaga eftir að hið nýja gengi tekur gildi.

Í 2. gr. er gert ráð fyrir að taka gengismun af þeim birgðum sjávarafurða, sem framleiddar hafa verið, en ekki fluttar út eða verið greiddar áður en hið nýja gengi tók gildi. Er það ákveðinn hundraðshluti sem nemur þeirri breytingu sem gerð var á gengi krónunnar í dag. Rétt þykir að undanþiggja þær afurðir, sem framleiddar voru frá og með 1. jan. 1978 til 6. febr., þar sem þær efnahagsráðstafanir, sem nú eru gerðar, eiga að tryggja grundvöll framleiðslunnar frá upphafi ársins og nýtt fiskverð m, a. gilt frá sama tíma. Þessar afurðir verða því greiddar með nýja genginu. Sjávarútvegurinn hefur að því leyti nokkra sérstöðu meðal atvinnuvega landsmanna, að nánast öll hans framleiðsla er flutt út. Oft eru birgðir sjávarafurða allmiklar og er svo einnig nú, en þær skiptast misjafnt eftir afurðum, þar sem framleiðsla vissra afurða er árstíðabundin. Er því nokkur hending hvernig stendur á birgðum hverju sinni. Hins vegar er það nú eins og oft áður, að afkoma hinna ýmsu greina sjávarútvegsins er æði misjöfn. Það hefur verið venja um allmörg undanfarin ár, að við gengisbreytingar hefur gengismunur af sjávarafurðum verið látinn renna í sérstakan sjóð sem varið hefur verið á mismunandi hátt í þágu þinna ýmsu greina sjávarútvegsins. Það er einnig lagt til nú.

Áður en kemur til ráðstöfunar á því fé, sem rennur til gengismunarsjóðs, hefur þó þótt rétt að greiða af óskiptu þær hækkanir á flutningskostnaði og öðrum sambærilegum kostnaði.

Við útflutning þeirra afurða sem framleiddar hafa verið fyrir áramót, en ekki fluttar út fyrr en eftir gengisbreytinguna. Enn fremur þykir eðlilegt að greitt verði af gengismun, áður en honum er ráðstafað, það sem ríkissjóður hefur vegna framleiðslu ársins 1976 greitt til Verðjöfnunarsjóðs, en sú upphæð er 174 millj. kr.

Í 3. gr. er fjallað um ráðstöfun á gengismunarsjóði. Um það ríkir nokkur óvissa, hversu mikið fé verður hér um að ræða, þar sem miklar birgðir eru af óseldri skreið sem ekki er vitað hvernig kunna að seljast eða hvenær. Sama gegnir um verkaðan saltfisk, sem seldur var til Zaire og ekki hefur fengist greiddur enn. Því er ekki talið til heildarverðmæta birgða andvirði þessara sjávarafurða, en að þeim frádregnum er gert ráð fyrir 18 milljörðum kr. í heildarverðmætt birgða.

Varðandi ráðstöfun á gengismunarsjóði er gert ráð fyrir að 65% af því fé, sem kemur í sjóðinn, renni til deilda Verðjöfnunarsjóðs, en þörf er á að efla þann sjóð sem hefur þurft að taka á sig skuldbindingar er hafa verið bein afleiðing af kostnaðarhækkunum framleiðslunnar innanlands. Þá er gert ráð fyrir að stofna sérstaka deild við Verðjöfnunarsjóð fyrir saltsíld, þar sem framleiðsla hennar virðist nú komin á öruggan grundvöll og hún fer vaxandi. Þá er því fé, sem eftir er í gengismunarsjóði, ásamt því, sem til fellur af öðrum sjávarafurðum, að hluta varið til að létta stofnkostnaðarbyrði eigenda fiskiskipa sem orðið hafa fyrir gengistapi vegna erlendra og gengistryggðra skulda. Að hluta verður þessu fé síðan ráðstafað til hagræðingar í fiskiðnaði, eins og ég gat um áðan, en það er brýn nauðsyn, ekki síst vegna þess hve mismunandi fiskvinnslufyrirtækin eru í stakk búin til að hagnýta hráefnin á hagkvæmasta hátt. Er gert ráð fyrir að sjútvrn. setji nánari reglur um notkun þessa hluta gengismunarsjóðs.

Það skal tekið fram, að ekki þykir ástæða til að setja hliðstæð ákvæði vegna annarra útflutningsgreina, einkum af því að bar er ekki um að ræða sömu forsendur um skiptingu framleiðslunnar á tvö stig, veiðar og vinnslu, þar sem annað stigið, vinnslan, nýtur að óþreyttu alfarið gengismunar, né heldur er þar um að ræða jöfnunarkerfi af því tagi sem Verðjöfnunarsjóður er. Í landbúnaði verður gengisbreytingin tekin beint til þess að lækka þörfina fyrir útflutningsbætur og verður ekki varið betur. Þar er því ekki þörf fyrir sjóðmyndun.

Herra forseti. Að svo mæltu vil ég leyfa mér að leggja til að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar.