15.02.1978
Neðri deild: 58. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2442 í B-deild Alþingistíðinda. (1798)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 14, febr. 1978.
Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Jóhannes Árnason sýslumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Matthías Bjarnason,
1. þm. Vestf.“
Ég býð Jóhannes Árnason velkominn til starfa í deildinni.