08.03.1978
Neðri deild: 65. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2824 í B-deild Alþingistíðinda. (2077)

142. mál, geymslufé

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Þetta frv. til l. um geymslufé hefur gengið í gegnum hv. Ed. og tekið þar aðeins einni breytingu. Það er breyting á 5. gr. og hana er að finna á þskj. 404. Í aths., sem fylgja þessu frv., er gerð grein fyrir því, hvers vegna það er flutt. Þar er einnig að finna skýringar á efni þess almennt svo og á einstökum greinum frv.

Ég leyfi mér að vísa til þessara skýringa og legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.