19.04.1978
Neðri deild: 79. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3690 í B-deild Alþingistíðinda. (2859)

218. mál, áskorunarmál

Páll Pétursson:

Herra forseti. Allshn. hefur rætt þetta frv. og mælir með samþykkt þess eins og það liggur fyrir eftir afgreiðslu Ed. Það var skoðun okkar allra, að þessi breyting á lögunum mundi einfalda og greiða fyrir málsmeðferð, spara vinnu hjá dómurum og auka afköst dómstóla án þess að réttaröryggi borgaranna væri í nokkru skert.