19.10.1977
Efri deild: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í B-deild Alþingistíðinda. (76)

15. mál, skipulagslög

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen) :

Herra forseti. Þetta frv. til breyt. á skipulagslögum er samið af sömu n., sem undirbjó byggingarfrv. sem hér var til umr. nú næst á undan, og þetta frv. stendur í beinu sambandi við það frv. Ég tel ekki þörf á að skýra það nánar til viðbótar því sem gert er í grg. frv., en legg til að frv. verði einnig vísað til 2. umr. og félmn.