19.10.1977
Neðri deild: 4. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í B-deild Alþingistíðinda. (89)

2. mál, niðurfelling útflutningsgjalda á kolmunna- og spærlingsafurðum

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Hæstv. forseti. Þetta frv. um niðurfellingu útflutningsgjalda af kolmunna- og spærlingsafurðum á árinu 1977 er flutt til staðfestingar á brbl. um sama efni sem út voru gefin 15. júlí á s.l. sumri. Þetta var einn þáttur í því að draga verulega úr veiðum á þeim fisktegundum, sem eru í verulegri lægð um þessar mundir, og leggja þess í stað kapp á að auka veiðar á öðrum tegundum og þá sérstaklega á kolmunna og spærlingi, sem haft var í huga. En til þess að greiða fyrir því og auka áhuga manna á þessum veiðum var talið nauðsynlegt að leggja til, að útflutningsgjald af þessum afurðum yrði fellt niður á þessu ári. Þrátt fyrir það að þetta útflutningsgjald var fellt niður, sem gerði það að verkum að þessar afurðir til útgerðar og sjómanna hækkuðu um nálægt 1.10 kr. hvert kg, var árangurinn ekki að sama skapi, því að kolmunnaveiði var mun minni en við gerðum ráð fyrir, að menn mundu frekar fara yfir í þessar veiðar en áður. Þær byrjuðu, þessar veiðar, við Færeyjar samkv. samningi og samkomulagi á milli Færeyinga og Íslendinga, og þar veiddust tæpar 5200 lestir af kolmunna, en við Austurland veiddust um 3150 lestir sem eitt einasta skip, Börkur frá Neskaupstað, tók, en hélt því miður ekki áfram þessum veiðum. En hann var einnig einn af þátttakendunum í veiðum við Færeyjar. Önnur veiði á kolmunna hefur verið fram til miðs þessa mánaðar um 625 tonn.

Samtals hefur kolmunnaveiðin numið tæpum 9 þús. tonnum, eða 8950 tonnum.

Á vegum sjútvrn. og í nánu samstarfi við Hafrannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Hafrannsóknastofnunina var tekinn á leigu togarinn Runólfur frá Grundarfirði og aflaði hann 125 lesta og þar af voru heilfrystar hjá ýmsum frystihúsum um 50 lestir. Sömuleiðis var unnið í marning í frystihúsi í Sandgerði og heilfryst, slægt og hausað af Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði 20 lestir á hvorum stað, en Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hefur unnið úr afla Runólfs í Gerðum um það bil 150 lestir í skreið eða til þurrkunar, og það er stærsta tilraun sem hefur verið gerð á þessu sviði á þessu ári. Þessar tilraunir halda áfram, og nú nýlega hefur á vegum sjútvrn. verið tekinn á leigu annar togari þegar Runólfur hætti, togarinn Guðmundur Jónsson frá Sandgerði, sem er ætlunin að leigja um mánaðarskeið til þess að halda þessum veiðum áfram, og þá sérstaklega á Dornbanka, og leggja upp bæði kolmunna til vinnslu í verksmiðjum og eins að halda þessum þurrkunartilraunum áfram á vegum Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins.

Spærlingsveiðarnar hafa einnig verið mun minni en menn gerðu sér vonir um á s.l. vori. Það hefur verið landað mest í Vestmannaeyjum, 11200 tonnum, í Þorlákshöfn rúmlega 6400 tonnum og Grindavík og víðar 12 þús. tonnum, eða samtals liðlega 18800 tonnum. En þrátt fyrir það að almennur áhugi er ekki hjá útgerðarmönnum um á kolmunnaveiðum og kolmunnavinnslu, þá tel ég að þessi brbl. hafi verið nauðsynlegt að gefa út og nauðsynlegt að staðfesta af Alþ. Og ég vil lýsa því hér yfir, að ég tel að þó að þessi lög séu aðeins um niðurfellingu útflutningsgjalda á þessu ári, þá tel ég mjög koma til greina að framhald verði á þessu á næsta ári, meðan verið er að glæða áhuga manna á veiðum á þessum fisktegundum og á þann hátt að draga úr öðrum fiskveiðum.

Forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.