16.12.1977
Neðri deild: 32. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (999)

75. mál, launaskattur

Fram. meiri hl. (Eyjólfur K. Jónsson):

Hæstv. forseti. Mál þetta er góðkunningi hv. þm. Launaskattur hefur nú um alllangt árabil verið framlengdur árlega um þetta leyti ársins, en nú er lagt til að hann verði framlengdur ótímabundið. N. hefur klofnað um málið, og leggur meiri hl. til að frv, verði samþ., en minni hl., hv. þm. Lúðvík Jósepsson og Gylfi Þ. Gíslason, skilar séráliti.