Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 14, 114. löggjafarþing 2. mál: þingsköp Alþingis.
Lög nr. 55 31. maí 1991.

Lög um þingsköp Alþingis.


I. ÞINGSKIPUN

1. gr.

     Þegar Alþingi kemur saman við þingsetningu skal sá þingmaður, sem hefur lengsta fasta þingsetu að baki, stjórna umræðunum þangað til forseti þingsins er kosinn og standa fyrir kosningu hans. Hafi tveir þingmenn eða fleiri setið jafnlengi á þingi skal sá teljast aldursforseti sem eldri er.
     Á fyrsta fundi þingsins eftir kosningar til Alþingis skal kjósa níu þingmenn í nefnd eftir reglum 68. gr. til þess að prófa kjörbréf og kosningu nýkjörinna þingmanna og varaþingmanna. Nefndin kýs sér formann og framsögumann og gerir tillögu til þingsins um hvort kosning og kjörgengi þingmanns skuli talin gild. Tillögurnar má bera upp munnlega, án nokkurs fyrirvara, og ræður afl atkvæða um gildi kosninga og kjörgengi, svo og hvort fresta skuli úrskurði þar um, sbr. 46. gr. stjskr.
     Umræður á þingsetningarfundum fara fram eftir fyrirmælum 55. gr.

2. gr.

     Sérhver nýr þingmaður skal vinna drengskaparheit að stjórnarskránni undireins og búið er að viðurkenna að kosning hans sé gild skv. 47. gr. stjskr.

3. gr.

     Þá skal kjósa forseta Alþingis. Í kjöri eru þeir einir sem tilnefndir eru og eigi hreyfa andmælum við því.
     Rétt kjörinn forseti er sá er hefur meira en helming greiddra atkvæða. Verði þeim atkvæðafjölda eigi náð við fyrstu kosningu skal kosið að nýju um þá tvo þingmenn er flest fengu atkvæði; hafi við þá kosningu fleiri fengið jafnmörg atkvæði ræður hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Ef þeir fá báðir jafnmörg atkvæði ræður hlutkesti hvor þeirra verður forseti. Berist aðeins ein tilnefning skv. 1. mgr. skal kosning eigi að síður fara fram um þann sem tilnefndur er.
     Forseti gengst fyrir kosningu fjögurra varaforseta skv. 68. gr. Ef ekki er samkomulag milli þingflokka um einn lista skal kosning fara eftir reglum 5. mgr. þeirrar greinar.
     Þegar þessum kosningum er lokið skal hluta um sæti þingmanna.

4. gr.

     Kjörbréfanefnd skv. 1. gr. skal einnig prófa kjörbréf er síðar koma fram, svo og rannsaka kosningar og kjörgengi, er þingið hefur frestað að taka gild, og kærur yfir kosningum eða kjörgengi er þegar eru tekin gild.
     Ef nefnd þessi lætur uppi skriflega tillögu eða ef hún leggur til að kosning skuli teljast ógild skulu tillögur hennar ræddar eftir reglunum um 2. umr. lagafrumvarpa skv. 1. mgr. 39. gr. Ella fer um tillögur nefndarinnar eftir því sem ákveðið er um tillögur hennar í 1. gr.

5. gr.

     Þingið getur við rannsókn þá, er ræðir um í 1. gr., úrskurðað kosningu ógilda þótt eigi hafi hún kærð verið og einnig frestað að taka kosningu gilda til þess að fá skýrslur. Svo er og um kosningu þingmanns er eigi er kominn, eða kjörbréf hans, þá er þing er sett.
     Sama er um kjörgengi.
     Að öðru leyti tekur þingið eigi upp hjá sjálfu sér að rannsaka kosningar eða kjörgengi en gerir það því aðeins að kært sé yfir þeim.
     Kæru yfir kosningu þingmanns eða kjörgengi skal því aðeins taka til greina að hún sé komin til Alþingis í byrjun þings næst á eftir kosningu eða áður en kosning þingmanns er tekin gild á Alþingi.
     Við prófun kosninga og kjörgengis hefur sérhver þingmaður fullan þingmannsrétt. En fresti þingið úrskurði um kjörbréf þingmanns þá tekur hann engan þátt í störfum þingsins uns það mál er útkljáð og kosning hans og kjörgengi viðurkennd.

6. gr.

     Kosning forseta og varaforseta gildir þangað til nýtt þing er sett. Kosning kjörbréfanefndar er fyrir allt kjörtímabilið.
     Þó er hverjum forseta þingsins heimilt að leggja niður störf ef meiri hluti leyfir; svo getur og Alþingi vikið forseta frá en þó þarf til þess samþykki tveggja þriðju hluta þingmanna. Skal þá þegar kjósa nýjan forseta í sæti það er losnaði.

7. gr.

     Aldursforseti, sbr. 1. gr., hefur, meðan hann skipar forsetasæti, allan sama rétt og skyldur sem forseti.

8. gr.

     Forseti stjórnar umræðum og sér um að allt fari fram með góðri reglu. Forseti tekur við öllum erindum til Alþingis og annast um afgreiðslu þeirra mála er frá þinginu eiga að fara. Forseti skýrir á fundi frá erindum sem send eru þinginu og því sem útbýtt er á þingfundi.
     Nú vill forseti taka þátt í umræðum frekar en forsetastaða hans krefur og víkur hann þá á þingmannabekk en varaforseti tekur forsetasæti á meðan.
     Forseti hefur umsjón með starfi þingnefnda, sbr. II. kafla.
     Í forföllum forseta ganga varaforsetar að öllu leyti í hans stað.

9. gr.

     Forseti ber ábyrgð á rekstri Alþingis og hefur æðsta vald í stjórnsýslu þess.

10. gr.

     Með forseta starfa varaforsetar og mynda ásamt honum forsætisnefnd. Forseti stjórnar fundum hennar.
     Forsætisnefnd skipuleggur þinghaldið og hefur umsjón með alþjóðasamstarfi sem Alþingi á aðild að. Hún fjallar um fjárhagsáætlanir þingsins og stofnana sem undir Alþingi heyra. Nefndin setur almennar reglur um rekstur þingsins og stjórnsýslu. Auk þess fjallar forsætisnefnd um þau mál sem forseti leggur fyrir hana eða varaforsetar óska að ræða. Verði ágreiningur í nefndinni sker forseti úr.
     Forsætisnefnd fer með þau verkefni sem forsetum Alþingis hafa verið falin í öðrum lögum.

11. gr.

     Forsætisnefnd ræður skrifstofustjóra til sex ára í senn. Hann stjórnar skrifstofu Alþingis og framkvæmdum á vegum þingsins, hefur umsjón með fjárreiðum þess og eignum í umboði forseta.
     Skrifstofustjóri situr fundi forsætisnefndar og er forseta og nefndinni til aðstoðar í öllu er varðar stjórn þingsins.
     Skrifstofustjóri gerir tillögur til forseta um ráðningu annarra starfsmanna þingsins.

12. gr.

     Skrifstofustjóri, eða fulltrúi hans, situr þingfundi og heldur gerðabók, undir umsjón forsetans, og getur í henni mála þeirra, er rædd eru á fundum, og úrslita þeirra.
     Í byrjun fundar skal gerðabók frá síðasta fundi samþykkt og undirskrifuð af forseta. Þingmenn skulu eiga kost á að kynna sér gerðabók í skrifstofunni að minnsta kosti tveimur tímum áður en næsti fundur byrjar.
     Forseta er heimilt að kveðja til tvo þingmenn til að telja saman atkvæði við atkvæðagreiðslur og kosningar.
     Skrifstofustjóri skal ásamt forseta sjá um að samþykktir þingsins séu skrásettar og rita forsetinn og skrifstofustjórinn undir þær.

II. NEFNDIR

13. gr.

     Á Alþingi starfa þessar fastanefndir:
  1. Allsherjarnefnd.
  2. Efnahags- og viðskiptanefnd.
  3. Félagsmálanefnd.
  4. Fjárlaganefnd.
  5. Heilbrigðis- og trygginganefnd.
  6. Iðnaðarnefnd.
  7. Landbúnaðarnefnd.
  8. Menntamálanefnd.
  9. Samgöngunefnd.
  10. Sjávarútvegsnefnd.
  11. Umhverfisnefnd.
  12. Utanríkismálanefnd.

     Fastanefndir skal kjósa á fyrsta fundi hvers þings og skal kosið hlutbundinni kosningu, sbr. 68. gr. Kosning fastanefnda gildir til upphafs næsta þings.

14. gr.

     Í fjárlaganefnd skulu kosnir ellefu þingmenn en í aðrar fastanefndir níu þingmenn. Til utanríkismálanefndar skal að auki kjósa níu varamenn. Þingflokki, sem ekki á fulltrúa í fastanefnd skv. 13. gr., er heimilt, með samþykki nefndarinnar, að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu á fundum hennar.
     Fastanefnd kýs sér formann og varaformann er gegnir störfum formanns í forföllum hans. Skulu þeir kosnir á fyrsta fundi nefndarinnar er boða skal til innan viku frá kosningu hennar.
     Sá kveður þingnefnd saman til fyrsta fundar er fyrstur var kosinn og lætur hann kjósa formann og varaformann nefndarinnar. Forseti skal tilkynna kjör þeirra á þingfundi.
     Formanni og varaformanni nefndar er heimilt að leggja niður störf ef nefnd leyfir; svo getur og nefnd vikið formanni og varaformanni frá en þó þarf til þess samþykki tveggja þriðju hluta nefndarmanna.

15. gr.

     Formaður, eða varaformaður í forföllum hans, boðar til fundar í nefnd og stýrir fundum hennar. Ef formaður og varaformaður eru forfallaðir, eða varaþingmenn sitja fyrir þá, felur nefnd öðrum að gegna formannsstörfum.

16. gr.

     Heimilt er þingflokkum að hafa mannaskipti í nefndum. Ósk um slík mannaskipti skal lögð fyrir forseta er tilkynnir um hana á þingfundi. Sé óskað atkvæðagreiðslu um mannaskiptin skal forseti láta ganga til atkvæða um þau á þingfundi.

17. gr.

     Um skyldu nefndarmanna til að sækja nefndarfund gilda almennar reglur um fundarsókn þingmanna, sbr. 53. gr. Forföll skulu tilkynnt formanni.
     Varaþingmaður, sem tekur sæti á Alþingi í forföllum þingmanns, skal eiga sæti í þeim nefndum sem aðalmaður var kjörinn í.
     Í forföllum nefndarmanns er þingflokki hans heimilt að tilnefna annan þingmann sem varamann um stundarsakir til setu í nefnd og skal tilkynna formanni nefndar um það. Staðgengill nýtur allra sömu réttinda og aðrir nefndarmenn.

18. gr.

     Forseti ákveður í samráði við formenn fastanefnda fundatíma nefnda, starfsáætlun þeirra og starfshætti að svo miklu leyti sem ekki er kveðið á um þá í þingsköpum.
     Forseti skal gera áætlun um afgreiðslu mála úr nefndum í samráði við formenn þeirra þannig að unnt sé að skipa málum niður á dagskrá þingsins í hagkvæmri tímaröð og dreifa þeim sem jafnast á þingtímann.

19. gr.

     Fundir nefnda skulu lokaðir öðrum en nefndarmönnum og starfsmönnum þeirra nema nefnd ákveði annað.

20. gr.

     Nefndarfundi skal ekki halda þegar þingfundur stendur yfir. Frá þessu má þó víkja ef nefndarmenn samþykkja og forseti hreyfir ekki andmælum.

21. gr.

     Nefndir skulu halda gerðabók um það sem fram fer á fundum. Starfsmaður nefndar, nefndarritari, ritar fundargerð og skal fundargerðin undirrituð af formanni og nefndarritara. Forseti setur nánari reglur um frágang fundargerða nefnda.

22. gr

     Formanni er heimilt að setja nefndarfund ef til hans hefur verið boðað með dagskrá. Fundurinn er þó því aðeins ályktunarbær að meiri hluti nefndarmanna sé staddur á fundi.

23. gr.

     Til fastanefnda getur þingið vísað þeim þingmálum sem lögð eru fram og þörf þykir að nefnd íhugi. Vísa skal frumvörpum, þingsályktunartillögum og skýrslum til nefnda eftir efni þeirra og hafa um það hliðsjón af skiptingu málefna í Stjórnarráðinu. Til allsherjarnefndar skal vísa dómsmálum, kirkjumálum, byggðamálum og öðrum þeim málum sem þingið ákveður. Vísa má máli til nefndar á hverju stigi þess. Sé það gert áður en umræðu er lokið þá skal henni frestað.
     Áður en 1. umr. fer fram um stjórnarfrumvörp eða fyrri umræða um tillögur frá ríkisstjórninni getur forseti heimilað, ef ósk berst um það frá níu þingmönnum, að nefnd athugi mál í því skyni að afla frekari upplýsinga um það eða skýringa á efni þess. Slíkt er og heimilt að gera að lokinni framsöguræðu um málið. Forseti ákveður hve lengi athugun nefndarinnar má standa.
     Nefnd, sem fengið hefur mál til athugunar, skal heimilt að vísa því til annarrar fastanefndar telji hún við nánari athugun að málið eigi frekar heima í þeirri nefnd. Áður skal þó liggja fyrir samþykki þeirrar nefndar sem málinu er vísað til.

24. gr.

     Utanríkismálanefnd skal vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera undir hana slík mál jafnt á þingtíma sem í þinghléum. Nefndarmenn eru bundnir þagnarskyldu um þá vitneskju sem þeir fá í nefndinni ef formaður eða ráðherra kveður svo á.

25. gr.

     Til fjárlaganefndar skal m.a. vísa frumvarpi til fjárlaga, fjáraukalaga, lánsfjárlaga og laga um samþykkt á ríkisreikningi er 1. umr. um þau er lokið. Frumvarpi til fjárlaga skal að nýju vísað til fjárlaganefndar að lokinni 2. umr.
     Fjárlaganefnd getur vísað til annarra fastanefnda þeim þáttum fjárlagafrumvarpsins sem fjalla um málefnasvið þeirra. Með sama hætti geta aðrar fastanefndir ákveðið að fjalla um einstaka þætti fjárlagafrumvarpsins. Til efnahags- og viðskiptanefndar vísar fjárlaganefnd frumvarpi til lánsfjárlaga og tekjugrein fjárlagafrumvarps. Nefndirnar skila fjárlaganefnd áliti og tillögum svo tímanlega fyrir 2. umr. fjárlaga sem fjárlaganefnd ákveður. Efnahags- og viðskiptanefnd skal gera grein fyrir áhrifum skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs fyrir 3. umr. Álit og tillögur nefndanna skal prenta sem fylgiskjöl með nefndaráliti fjárlaganefndar eða meiri hluta hennar. 3. umr. um frumvarp til fjárlaga skal hefjast eigi síðar en 15. desember.
     Fjárlaganefnd á rétt á að fá þær upplýsingar sem hún telur nauðsynlegar um rekstur og fjárhagsáætlanir fyrirtækja og stofnana sem óska eftir framlögum úr ríkissjóði. Enn fremur er þeim stofnunum ríkisins, er fást við efnahagsmál, skylt að veita nefndinni upplýsingar og aðstoð sem hún þarf á að halda við afgreiðslu þingmála.

26. gr.

     Heimilt er nefnd að eigin frumkvæði að fjalla um önnur mál en þau sem þingið vísar til hennar. Um slík mál getur nefnd gefið þinginu skýrslu, sbr. 31. gr.

27. gr.

     Þegar máli hefur verið vísað til nefndar til athugunar tekur hún ákvörðun um málsmeðferð og getur þá jafnframt falið einum nefndarmanni að vera framsögumaður málsins. Framsögumaður skal þá fyrir hönd nefndarinnar vinna að athugun málsins, gera tillögu um afgreiðslu þess og drög að nefndaráliti þegar hann hefur lokið athugun sinni.

28. gr.

     Nefnd getur við umfjöllun máls óskað skriflegra umsagna um það frá aðilum utan þings. Á sama hátt geta þeir er mál varðar komið skriflegum athugasemdum sínum að eigin frumkvæði á framfæri við nefnd. Sömuleiðis getur nefnd samþykkt að taka við gestum og hlýða á mál þeirra.
     Forseti setur nánari reglur um meðferð erinda og umsagna sem berast nefndum.

29. gr.

     Þá er nefnd hefur lokið athugun máls og kosið framsögumann fyrir það, sbr. þó fyrri málsl. 27. gr., lætur hún uppi álit sitt er skal prentað og útbýtt meðal þingmanna á fundi. Ef nefnd er ekki einhuga um afgreiðslu máls og hver hluti hennar skilar áliti skal hann tilnefna framsögumann. Eigi má taka málið til umræðu fyrr en að minnsta kosti einni nóttu síðar en áliti nefndar eða meiri hluta hennar var útbýtt.
     Fái nefnd mál til umfjöllunar á nýjan leik eftir útgáfu nefndarálits getur hún gefið út framhaldsnefndarálit.

30. gr.

     Nefnd getur látið uppi álit á tveimur eða fleiri málum saman ef þau fjalla um skyld efni.
     Mæli nefnd með samþykkt lagafrumvarps eða þingsályktunartillögu skal hún láta prenta með áliti sínu áætlun um þann kostnað sem hún telur ný lög eða ályktun hafa í för með sér fyrir ríkissjóð.
     Forseti skal setja nánari reglur um frágang nefndarálita, m.a. um hvað koma skuli fram í þeim, og um prentun fylgiskjala.

31. gr.

     Nefnd getur með skýrslu gert þinginu grein fyrir athugun sinni á þingmáli sem hún hefur ekki lokið athugun á að fullu telji hún sérstaka ástæðu til þess. Á sama hátt getur nefnd enn fremur gefið þinginu skýrslu um störf sín.

32. gr.

     Heimilt er að kjósa sérnefndir til að íhuga einstök mál. Um sérnefndir gilda sömu reglur og um fastanefndir eftir því sem við á.

33. gr.

     Heimilt er þingnefnd að afla sér sérfræðilegrar aðstoðar við afgreiðslu þingmála frá stofnunum eða einstaklingum utan skrifstofu Alþingis. Forseti setur nánari reglur um þetta efni.

34. gr.

     Hver fastanefnd skal hafa nefndarritara er ritar fundargerðir, aðstoðar við gerð nefndarálita og breytingartillagna, aflar upplýsinga, er nefnd óskar eftir, og hefur á hendi önnur þau verkefni sem nefnd ákveður.

35. gr.

     Á Alþingi starfa þessar alþjóðanefndir:
  1. Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins.
  2. Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins.
  3. Íslandsdeild þingmannanefndar Fríverslunarsamtaka Evrópu.
  4. Íslandsdeild Norður-Atlantshafsþingsins.
  5. Íslandsdeild Norðurlandaráðs.
  6. Íslandsdeild Vestnorræna þingmannaráðsins.

     Til hverrar alþjóðanefndar skal velja samkvæmt starfsreglum sem um hana gilda. Þó er þingflokkum heimilt að tilnefna þingmenn í alþjóðanefndir ef um það er samkomulag milli þeirra. Tilnefningu skal þá lýst á þingfundi.
     Hver alþjóðanefnd skal hafa ritara sem er nefndinni til aðstoðar.
     Um aðrar alþjóðanefndir, er Alþingi kann að koma á fót, gilda ákvæði 2. og 3. mgr.
     Forseti setur almennar reglur um störf alþjóðanefnda þingmanna.

III. ÞINGMÁL

36. gr.

     Lagafrumvörp skulu vera samin með lagasniði og skal prenta þau og útbýta þeim meðal þingmanna á fundi. Hverju frumvarpi skal fylgja greinargerð um tilgang þess yfirleitt og skýring á höfuðákvæðum. Eigi má, nema með samþykki þingsins, taka frumvarp til umræðu fyrr en liðnar eru að minnsta kosti tvær nætur frá því er því var útbýtt.
     Lagafrumvörp, sem útbýtt er sex mánuðum eftir þingsetningu, verða því aðeins tekin á dagskrá að meiri hluti þingmanna samþykki það.

37. gr.

     Ekki er lagafrumvarp samþykkt til fullnaðar fyrr en það hefur verið rætt við þrjár umræður.

38. gr.

     Við fyrstu umræðu skal ræða frumvarpið í heild sinni. Þá er þeirri umræðu er lokið er leitað atkvæða um hvort það eigi að ganga til annarrar umræðu og nefndar.

39. gr.

     Önnur umræða fer eigi fram fyrr en einni nóttu eftir fyrstu umræðu eða útbýtingu nefndarálits og skal þá ræða greinar frumvarpsins og breytingartillögur við þær. Síðan skal greiða atkvæði um hverja grein og breytingartillögur við hana, ef fram hafa komið, og loks um það hvort frumvarpið eigi að ganga til þriðju umræðu.
     Breytist frumvarp við aðra umræðu á annan hátt en þann er nefnd leggur til skal hún fjalla um það áður en þriðja umræða hefst ef einhver þingmaður eða ráðherra óskar þess.

40. gr.

     Þriðja umræða má eigi fara fram fyrr en einni nóttu eftir aðra umræðu. Þá skal ræða breytingartillögur og greinar er þær eiga við, svo og frumvarpið í heild. Þá er umræðum er lokið skal leita atkvæða um breytingartillögur og síðan um frumvarpið í heild sinni eins og það þá er orðið.
     Hafi breytingartillaga verið samþykkt við 3. umr. en umræðunni verið frestað áður en atkvæðagreiðsla fór fram um frumvarpið í heild og því vísað á ný til nefndar, sbr. 23. gr., er ráðherra, þingnefnd, sem haft hefur málið til athugunar, eða einstökum nefndarmönnum heimilt að leggja fram nýjar breytingartillögur við frumvarpið. Við framhald umræðunnar gilda ákvæði 55. gr. að nýju ef breytingartillögur hafa komið fram. Þegar umræðum er lokið skal fyrst greiða atkvæði um breytingartillögurnar og síðan frumvarpið í heild eins og það þá er orðið.

41. gr.

     Þá er frumvarp hefur þannig verið samþykkt við þrjár umræður sendir forseti það ríkisstjórninni sem lög frá Alþingi.

42. gr.

     Lagafrumvarpi, er felur í sér tillögu um breytingu á stjórnarskránni eða viðauka við hana, skal vísa til sérnefndar skv. 32. gr. Í fyrirsögn skal það nefnt frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Hafi það eigi þá fyrirsögn vísar forseti því frá.
     Breytingartillögu, sem felur í sér tillögu um breytingu á stjórnarskránni eða viðauka við hana, má aðeins gera við frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Sé hún gerð við annað frumvarp vísar forseti henni frá.

43. gr.

     Lagafrumvarp, er hefur verið fellt, má eigi bera upp aftur á sama þingi.

44. gr.

     Tillögur til þingsályktunar skulu vera í ályktunarformi. Skal prenta þær og útbýta þeim meðal þingmanna á þingfundi. Tillögu til þingsályktunar skal að jafnaði fylgja greinargerð með skýringu á efni hennar. Umræða má eigi fara fram fyrr en í fyrsta lagi tveimur nóttum eftir að tillögunni var útbýtt.
     Ekki er þingsályktunartillaga samþykkt til fullnaðar fyrr en hún hefur verið rædd við tvær umræður. Tillögur um vantraust og um frestun á fundum Alþingis skulu þó afgreiddar við eina umræðu.
     Við fyrri umræðu má hver ræðumaður tala tvisvar, flutningsmaður allt að fimmtán mínútum og aðrir þingmenn og ráðherrar allt að átta mínútum í senn. Þá er þessari umræðu er lokið er leitað atkvæða um hvort tillagan eigi að ganga til síðari umræðu og nefndar. Forseti getur ákveðið frávik frá þessari málsmeðferð ef fyrir liggur rökstudd beiðni þingflokks þar að lútandi. Hver þingflokkur hefur rétt til að bera slíka beiðni fram við forseta einu sinni á hverju þingi.
     Síðari umræða fer eigi fram fyrr en einni nóttu eftir fyrri umræðu eða útbýtingu nefndarálits. Skal þá ræða tillögugreinar og breytingartillögur við þær. Þá er umræðu er lokið skal greiða atkvæði um hverja tillögugrein og breytingartillögur við þær og loks tillöguna í heild sinni. Við umræðuna gilda ákvæði 55. gr.
     Forseta er heimilt að láta ákvæði 55. gr. gilda við fyrri umræðu um þingsályktunartillögur, er fjalla um stjórnskipun, utanríkis- eða varnarmál, staðfestingu framkvæmdaáætlana, alþjóðasáttmála eða milliríkjasamninga, liggi fyrir ósk um það.
     Þingsályktunartillögur, sem útbýtt er sex mánuðum eftir þingsetningu, verða því aðeins teknar á dagskrá að meiri hluti þings samþykki það.

45. gr.

     Ef ráðherra óskar að gera grein fyrir opinberu málefni gerir hann það með skýrslu til Alþingis er skal prentuð og útbýtt meðal þingmanna á fundi.
     Ef ráðherra óskar skal skýrslan tekin til umræðu. Sama gildir ef níu þingmenn óska þess. Ráðherrann gerir þá grein fyrir skýrslunni.
     Ef ekki verður við komið að prenta og útbýta skýrslu skv. 1. mgr. eða ekki þykir ástæða til getur ráðherra gert grein fyrir opinberu málefni með munnlegri skýrslu til Alþingis. Fer þá um umræðu sem um skriflega skýrslu, sbr. 48. gr.

46. gr.

     Níu þingmenn geta óskað skýrslu ráðherra um opinbert málefni. Skal beiðnin vera skrifleg og beint til forseta og má fylgja henni stutt greinargerð. Skal beiðnin prentuð og útbýtt meðal þingmanna á fundi. Á næsta þingfundi ber forseti það undir atkvæði umræðulaust hvort beiðnin skuli leyfð. Forseti tilkynnir hlutaðeigandi ráðherra um beiðni um skýrslu sem leyfð hefur verið.
     Er ráðherra hefur lokið skýrslugerðinni skal skýrslan prentuð og útbýtt meðal þingmanna á fundi.
     Ef ráðherra eða skýrslubeiðendur, einn eða fleiri, óska þess skal skýrslan tekin til umræðu. Ráðherra gerir þá grein fyrir henni.

47. gr.

     Alþjóðanefnd getur lagt skýrslu fyrir þingið. Skýrslan skal tekin til umræðu ef nefndin óskar þess eða beiðni kemur um það frá þingmanni.

48. gr.

     Við umræður um skýrslur skv. 45.–47. gr. mega þingmenn og ráðherrar tala tvisvar nema sá ráðherra er leggur skýrsluna fram, hann má tala svo oft sem honum þykir þurfa. Sama gildir um framsögumenn nefnda sem flytja skýrslur.
     Vísa má skýrslu til nefndar. Sé það gert skal fresta umræðunni og henni eigi fram haldið fyrr en einni nóttu eftir útbýtingu nefndarálits.

49. gr.

     Óski alþingismaður upplýsinga ráðherra eða svars um opinbert málefni eða einstakt atriði þess gerir hann það með fyrirspurn er afhent skal forseta. Fyrirspurn skal vera skýr, um afmörkuð atriði og mál sem ráðherra ber ábyrgð á og sé við það miðað að hægt sé að svara henni í stuttu máli. Alþingismaður segir til um það hvort hann óskar skriflegs eða munnlegs svars. Stutt greinargerð má fylgja fyrirspurn ef óskað er skriflegs svars.
     Forseti ákveður svo fljótt sem hann telur sér unnt hvort fyrirspurn skuli leyfð eða ekki. Ef vafi er getur forseti þó borið málið umræðulaust undir atkvæði á þingfundi. Skal það einnig gert ef fyrirspyrjandi óskar þess er forseti synjar fyrirspurn.
     Fyrirspurn skal prentuð og útbýtt meðal þingmanna á fundi. Fyrirspurn, sem leyfð hefur verið, skal send hlutaðeigandi ráðherra eða ráðherrum.
     Á sérstökum þingfundi skal forseti taka á dagskrá fyrirspurnir er útbýtt hefur verið í síðasta lagi þremur virkum dögum fyrir fundinn. Fyrirspurn skal þó að jafnaði ekki tekin á dagskrá síðar en átta virkum dögum eftir að henni var útbýtt.
     Fyrirspyrjandi eða framsögumaður fyrirspyrjenda mælir fyrir fyrirspurn. Ráðherra, er hlut á að máli, svarar síðan fyrirspurn. Hvor um sig, fyrirspyrjandi og ráðherra, má ekki tala oftar en tvisvar, fyrirspyrjandi eigi lengur en þrjár mínútur og ráðherra eigi lengur en fimm mínútur í senn. Öðrum þingmönnum er heimilt að gera einu sinni stutta athugasemd, eina mínútu hverjum.
     Ef óskað er skriflegs svars sendir ráðherra forseta það að jafnaði eigi síðar en tíu virkum dögum eftir að fyrirspurn var leyfð. Forseti sendir fyrirspyrjanda svarið og skal það prentað og útbýtt meðal þingmanna á fundi.
     Í allt að hálftíma á fyrir fram ákveðnum fundi getur forseti heimilað þingmönnum að bera fram munnlegar fyrirspurnir til ráðherra. Um ræðutíma gilda ákvæði 5. mgr.
     Við umræður um fyrirspurnir má engar ályktanir gera.

50. gr.

     Í allt að hálftíma á venjulegum fundartíma geta þingmenn fengið tekið fyrir mál utan dagskrár, hvort heldur er í formi yfirlýsingar eða fyrirspurnar til ráðherra. Skal þá þingmaður bera fram við forseta ósk sína hér um eigi síðar en tveimur klukkustundum áður en þingfundur hefst. Í upphafi þingfundar skal forseti tilkynna hvaða mál fyrirhugað er að taka til umræðu utan dagskrár. Málshefjandi hvers máls má eigi tala lengur en þrjár mínútur og aðrir eigi lengur en tvær mínútur í senn. Enginn má tala oftar en tvisvar.
     Forseti getur leyft að tekið sé fyrir mál utan dagskrár sem í senn er svo mikilvægt að ekki rúmast innan ramma 1. mgr. og svo aðkallandi að ekki geti beðið meðferðar formlegra þingmála. Málshefjandi og ráðherra, sem hlut á að máli, mega eigi tala lengur en þrjátíu mínútur og aðrir þingmenn og ráðherrar eigi lengur en fimmtán mínútur í senn. Enginn má tala oftar en tvisvar. 2. og 3. málsl. fyrri mgr. gilda einnig um umræður samkvæmt þessari málsgrein.

51. gr.

     Breytingartillögur við lagafrumvörp og þingsályktunartillögur skulu vera prentaðar og þeim útbýtt ekki síðar en einni nóttu áður en þær koma til umræðu. Breytingartillögu má fylgja stutt greinargerð. Ráðherra og hver þingmaður má koma fram með breytingartillögur við hverja umræðu sem er.
     Breytingartillögu við breytingartillögu má þingmaður bera upp við upphaf þess fundar er hún skal tekin til umræðu. Þó skal þá vera búið að útbýta henni. Nefnd getur einnig borið upp breytingartillögu við frumvarp eða þingsályktunartillögu með jafnstuttum fresti.
     Breytingartillögu um atriði, sem búið er að fella, má eigi bera upp aftur á sama þingi. Forseti úrskurðar hvort það er sama atriði sem gerð er tillaga um og áður hefur verið fellt og er þingmönnum skylt að hlíta þeim úrskurði.

52. gr.

     Þingmál, sem ekki hafa hlotið lokaafgreiðslu við þinglok, falla niður.

IV. FUNDARSKÖP

53. gr.

     Skylt er þingmönnum að sækja alla þingfundi nema nauðsyn banni. Forföll skal tilkynna forseta svo fljótt sem unnt er og metur hann nauðsynina. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda þó ekki um fyrirspurnafundi.
     Ef þingmaður forfallast svo að nauðsyn krefji að varamaður hans taki sæti hans á meðan skal hann tilkynna forseta það bréflega og jafnframt gera grein fyrir í hverju forföllin eru fólgin og hversu lengi þau muni vara. Forseti kynnir þinginu bréfið. Þegar varamaður tekur sæti í forföllum þingmanns skal hann ekki sitja skemur en tvær vikur nema þingið hafi áður verið rofið eða því frestað. Þingmaður nýtur ekki þingfararkaups meðan varamaður hans situr á þingi nema fjarvist sé vegna veikinda eða þingmaður sé fjarverandi í opinberum erindum.
     Þegar fundur er settur skal samþykkja gerðabók frá síðasta fundi, sbr. 12. gr. Þar næst skýrir forseti frá erindum þeim sem honum hafa borist eða þingskjölum sem útbýtt hefur verið. Þá er gengið til dagskrár.

54. gr.

     Þingmaður, sem hefur óskað að taka til máls og fengið leyfi til þess, skal mæla úr ræðustól. Þó getur forseti heimilað ræðumanni að tala úr sæti sínu ef nauðsyn krefur. Sama gildir um ráðherra. Ræðumaður skal jafnan víkja ræðu sinni til forseta eða fundarins en eigi ávarpa nokkurn einstakan þingmann. Kenna skal þingmann við kjördæmi hans eða nefna hann fullu nafni.

55. gr.

     Framsögumaður meiri og minni hluta nefndar, svo og flutningsmaður máls, en eigi nema einn þótt fleiri flytji, mega við hverja umræðu um mál tala þrisvar, sbr. þó 3. mgr. 44. gr. Ef tveir eða fleiri eru flutningsmenn skal sá er fyrstur stendur á skjalinu teljast framsögumaður nema annar sé tilnefndur. Aðrir mega ekki tala oftar en tvisvar. Ráðherrar, er hlut eiga að máli, mega tala svo oft sem þeim þykir þurfa.
     Jafnan er heimilt að gera stutta athugasemd um atkvæðagreiðslu, um gæslu þingskapa og til þess að bera af sér sakir. Enginn má þó tala lengur en fimm mínútur í senn.
     Þegar útvarpað er umræðum um þingmál skal farið eftir reglum VI. kafla.

56. gr.

     Forseti gefur þingmönnum venjulega færi á að taka til máls í þeirri röð er þeir beiðast þess þá er dagskrármálið er tekið fyrir. Þó getur hann vikið frá þeirri reglu við ráðherra, sem hlut á að máli, og framsögumann, svo og til þess að ræður með og móti málefni skiptist á, eða til þess að þingmaður geti gert stutta leiðréttingu eða athugasemd er snertir sjálfan hann.
     Forseti getur leyft þingmönnum að veita stutt andsvar við einstökum ræðum strax og þær hafa verið fluttar. Skal þá sá er vill svara bera fram ósk um það við forseta. Andsvari má einungis beina að máli ræðumanns en ekki öðru andsvari. Hvert andsvar má ekki taka lengri tíma en tvær mínútur og skal ræðumanni heimilt að svara því á tveimur mínútum. Heimilt er forseta að stytta ræðutíma hvers ræðumanns í þessum umræðum. Enginn má veita andsvar oftar en tvisvar sinnum hverju sinni. Orðaskipti í andsvörum mega ekki standa lengur en í fimmtán mínútur í einu.

57. gr.

     Ef umræður dragast úr hófi fram getur forseti úrskurðað að ræðutími hvers þingmanns skuli ekki fara fram úr ákveðinni tímalengd.
     Forseti getur stungið upp á að umræðum sé hætt og einnig getur forseti lagt til, hvort heldur í byrjun umræðu eða síðar, að umræðum um mál skuli lokið að liðnum ákveðnum tíma. Eigi má þó, meðan nokkur þingmaður kveður sér hljóðs, takmarka ræðutíma við nokkra umræðu svo að hún standi skemur en þrjár klukkustundir alls. Tillögur forseta skulu umræðulaust bornar undir atkvæði og ræður afl atkvæða úrslitum.
     Sömuleiðis geta níu þingmenn krafist þess að greidd séu atkvæði um það umræðulaust hvort umræðu skuli lokið, umræðutími eða ræðutími hvers þingmanns takmarkaður. Nöfn þeirra þingmanna skulu lesin upp og rituð í gerðabókina.
     Nú hefur verið samþykktur takmarkaður umræðutími eða ákveðinn ræðutími hvers þingmanns og skal þá forseti skipta umræðutímanum í heild sem jafnast á milli fylgismanna og andstæðinga máls þess sem er til umræðu, án þess að hann sé bundinn við í hvaða röð þingmenn hafa kvatt sér hljóðs, eða milli flokka ef hentara þykir.
     Ákvæði þessarar greinar ná einnig til ræðutíma ráðherra.

58. gr.

     Eigi má, nema með leyfi forseta, lesa upp prentað mál.

59. gr.

     Skylt er þingmanni að lúta valdi forseta í hvívetna er að því lýtur að gætt sé góðrar reglu. Skyldi almenn óregla koma upp er það skylda forseta að gera hlé á fundinum um stundarsakir eða, ef nauðsyn ber til, slíta fundinum.

60. gr.

     Frumvörp, hvort heldur eru frá ríkisstjórn eða þingmönnum, svo og tillögur til þingsályktunar og breytingartillögur, má kalla aftur á hverju stigi umræðu sem vill. En heimilt er hverjum þingmanni að taka það jafnskjótt upp aftur á sama fundi, sbr. þó 2. mgr. Fyrirspurn má og afturkalla.
     Breytingartillögu, sem er á dagskrá við 2. umr. um lagafrumvarp, má flutningsmaður kalla aftur, að hluta eða í heild, til 3. umr. og kemur hún þá til afgreiðslu við þá umræðu.

61. gr.

     Þyki eigi ástæða til að gera ályktun um eitthvert málefni sem á dagskrá er getur þingið vísað því til ríkisstjórnarinnar eða einstakra ráðherra.

62. gr.

     Heimilt er þingmanni að krefjast þess að gengið sé til atkvæða um eitthvert þingmál umræðulaust, en það skal því aðeins gert að tveir þriðju hlutar fundarmanna séu því samþykkir.
     Meðan á umræðum stendur má gera rökstudda tillögu um að taka skuli fyrir næsta mál á dagskránni og skal þá afhenda forseta tillöguna um það skrifaða. Slíka tillögu má og gera í prentuðu þingskjali.

63. gr.

     Forseti ákveður dagskrá hvers fundar. Þó má ákveða dagskrá næsta fundar eftir ályktun þingsins.
     Forseti getur breytt röðinni á þeim málum sem eru á dagskrá og einnig tekið mál út af dagskrá.
     Forseti getur heimilað, ef ósk berst um það frá flutningsmanni eða flutningsmönnum og enginn þingmaður andmælir því, að umræður fari fram um tvö eða fleiri dagskrármál í einu ef þau fjalla um skyld efni eða það þykir hagkvæmt af öðrum ástæðum.

64. gr.

     Eigi má gera neina ályktun nema meira en helmingur þingmanna sé á fundi og taki þátt í atkvæðagreiðslunni, sbr. 53. gr. stjskr. Þingmaður, sem er á fundi en greiðir ekki atkvæði við nafnakall, telst taka þátt í atkvæðagreiðslunni.
     Engin ályktun er lögmæt nema meira en helmingur fundarmanna, þeirra sem atkvæði greiða, greiði atkvæði með henni.
     Skylt er þingmanni að vera viðstaddur og taka þátt í atkvæðagreiðslu nema hann hafi lögmæt forföll eða fararleyfi.
     Enginn þingmaður má greiða atkvæði með fjárveitingu til sjálfs sín.

65. gr.

     Forseti ræður því hvernig atkvæðagreiðslu er skipt og hvernig hún fer fram. Þó getur þingið, ef níu þingmenn krefjast þess, breytt ákvörðun forseta.

66. gr.

     Þá er forseti hefur ástæðu til að ætla að allir séu á einu máli má hann lýsa yfir því að gert sé út um atriði án atkvæðagreiðslu ef enginn þingmaður krefst þess að hún fari fram og skal þá sú yfirlýsing forseta koma í stað atkvæðagreiðslu. Um lagafrumvörp og þingsályktunartillögur verður forseti þó jafnan að hafa atkvæðagreiðslu við allar umræður, sbr. 38.–40. og 44. gr.
     Atkvæðagreiðslan fer fram á þann hátt að hver þingmaður réttir upp hönd hvort sem hann greiðir atkvæði með eða móti máli. Teljarar telja atkvæðin en forseti skýrir frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar eftir að atkvæða hefur verið leitað með og móti. Hafi atkvæðagreiðslan fallið þannig að málið sé hvorki samþykkt né fellt lætur forseti nafnakall fara fram. Sömuleiðis er forseta heimilt að láta atkvæðagreiðslu fara fram með nafnakalli annaðhvort þegar í stað eða ef atkvæðagreiðsla hefur áður farið fram en verið óglögg. Komi fram ósk um nafnakall skal við henni orðið.
     Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá í stafrófsröð og hluta um í hvert sinn á hverri raðtölunni skuli byrja nafnakallið.
     Forseti skal jafnan greiða atkvæði síðastur.
     Atkvæðagreiðsla með rafeindabúnaði, þar sem staðfest er hverjir taka þátt í henni og hvernig hver þingmaður greiðir atkvæði, jafngildir nafnakalli. Atkvæði hvers þingmanns við lokaafgreiðslu lagafrumvarpa og þingsályktunartillagna skal skrásetja í þingtíðindunum. Sama gildir við aðrar atkvæðagreiðslur ef einhver þingmaður óskar þess á fundinum.

67. gr.

     Afl atkvæða ræður um úrslit mála og málsatriða nema öðruvísi sé ákveðið í stjórnarskránni eða þingsköpum.

68. gr.

     Um kosningar fer eftir því sem fyrir er mælt í 2. mgr. 3. gr. að því viðbættu að þegar kjósa á um tvo menn eða fleiri, hvort heldur er til starfa innan þings eða utan, skal forseti beita hlutfallskosningu með aðferð þeirri er kennd er við d'Hondt (listakosning). Aðferðin er svo sem greinir í 2.–4. mgr.
     Þeir þingmenn, er komið hafa sér saman um að kjósa allir sömu menn í sömu röð, afhenda forseta, þegar til kosninga kemur, lista yfir þá í þeirri röð. Þegar hann hefur tekið við listunum merkir hann hvern þeirra bókstaf, A, B, C o.s.frv., eftir því sem sjálfur hann ákveður eða ákveðið hefur verið með samkomulagi eitt skipti fyrir öll þann þingtíma. Síðan les forseti upphátt stafnafn hvers lista og nöfn þau er á honum standa. Þá kjósa þingmenn þannig að hver ritar á kjörmiða aðeins stafnafn (A, B o.s.frv.) þess lista er hann vill kjósa eftir. Kjörmiðarnir eru afhentir forseta og nefnir hann upphátt bókstaf hvers miða en teljarar rita jafnóðum og telja saman hve mörg atkvæði hafa fallið á hvern lista, hve mörg á A, hve mörg á B o.s.frv. Tölu þeirri, sem hver listi fær þannig, er svo skipt, fyrst með 1, síðan 2, síðan með 3 o.s.frv. eftir því sem með þarf. Hlutatölur hvers lista eru ritaðar í röð, hver niður undan annarri, og yfir dálkinum er ritaður bókstafur þess lista.
     Kosning fer eftir hlutatölunum þannig að sá listi fær fyrsta mann er hæsta á hlutatöluna, sá listi næsta mann er á næsthæsta hlutatölu o.s.frv. þar til fullskipað er. Ef jafnháar hlutatölur koma á tvo eða fleiri lista skal varpa hlutkesti um hvor eða hver listanna skuli koma að manni.
     Af hverjum lista skulu menn hljóta kosningu í þeirri röð sem þeir standa á listanum.
     Þegar kosnir eru varaforsetar samkvæmt síðari málsl. 3. mgr. 3. gr. skal fella niður hæstu hlutatölu þess lista sem þingflokkur forsetans á aðild að. Að öðru leyti gilda ákvæði 3. og 4. mgr. um kjör varaforseta og röð þeirra.
     Ef kjósa skal einnig varamenn skal listi, sem hlotið hefur mann eða menn, eiga rétt til jafnmargra varamanna í þeirri röð sem þeir standa á listanum.

69. gr.

     Þingfundir skulu haldnir í heyranda hljóði. Þó getur forseti lagt til eða þingmaður óskað þess að öllum utanþingsmönnum sé vísað á braut og sker þá þingið úr því hvort svo skuli gert og umræður fara fram í heyranda hljóði eða fyrir luktum dyrum, sbr. 57. gr. stjskr.

70. gr.

     Forseti skipar fyrir um hvernig mönnum skuli gefinn kostur á að vera við fundi þá er haldnir eru í heyranda hljóði. Áheyrendur eru skyldir til að vera kyrrir og hljóðir. Brjóti nokkur móti því getur forseti látið vísa honum á braut og, ef þörf er á, öllum áheyrendum.

V. ÞINGFLOKKAR OG ALMENNAR STJÓRNMÁLAUMRÆÐUR

71. gr.

     Skipi þingmenn sér í þingflokka skulu þeir velja sér formann er komi fram fyrir þeirra hönd gagnvart forseta og öðrum þingflokkum og þingmönnum.
     Í þingflokki skulu vera a.m.k. tveir þingmenn og má enginn þingmaður eiga aðild að fleiri en einum þingflokki.

72. gr.

     Forseti skal hafa reglulega samráð við formenn þingflokka, eða fulltrúa þeirra, um skipulag þingstarfa og leggja fyrir þá til umfjöllunar starfsáætlun þingsins og áætlanir um þingstörf hverrar viku.
     Enn fremur skal forseti hafa samráð við formenn þingflokka um fyrirkomulag umræðna um mikilvæg mál ef ætla má að umræður verði miklar.
     Forseti skal sjá um að þingflokkum og einstökum þingmönnum innan þeirra sé búin starfsaðstaða og hafa um það samráð við formenn þingflokkanna. Sama gildir um þingmenn utan flokka.

73. gr.

     Innan tíu daga frá setningu Alþingis skal forsætisráðherra flytja stefnuræðu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, en eftirrit af ræðunni skal afhent þingmönnum sem trúnaðarmál eigi síðar en viku áður en hún er flutt.
     Útvarpa skal stefnuræðunni og umræðu um hana. Umferðir skulu vera tvær. Í fyrri umferð hefur forsætisráðherra til umráða allt að hálfri klukkustund og fulltrúar annarra þingflokka en forsætisráðherrans 20 mínútur hver. Í annarri umferð hefur hver flokkur 10 mínútur til umráða.

74. gr.

     Á síðari hluta þings skal fara fram almenn stjórnmálaumræða. Umræðunni skal útvarpað og fer um þessa umræðu eins og þegar útvarpað er umræðu um þingmál, sbr. 79. gr.

VI. ÚTVARP UMRÆÐU

75. gr.

     Útvarpa skal frá þingsetningu.

76. gr.

     Útvarpa skal umræðu um vantraust ef níu þingmenn krefjast þess.

77. gr.

     Nú óskar þingflokkur að umræðu um þingmál verði útvarpað og beinir formaður þingflokksins tilmælum sínum til forseta. Skal forseti þegar tilkynna það formönnum annarra þingflokka en þeir leita samþykkis flokks síns svo fljótt sem auðið er. Útvarpa skal umræðu þegar samþykki allra flokka liggur fyrir. Sama gildir ef þingflokkur óskar að útvarpað verði umræðum á þingfundi eða hluta af þingfundi.

78. gr.

     Nú næst ekki samkomulag milli þingflokka um útvarp umræðu og skal forseti þá tilkynna það þeim sem kröfuna átti. Ef þingflokkur ítrekar kröfu sína skal umræðunni útvarpað. Réttur til útvarps án samþykkis annarra þingflokka gildir þó aðeins um tvær umræður umfram þann flokk sem sjaldnast hefur neytt þess réttar.

79. gr.

     Þegar útvarpað er umræðu um þingmál skulu þingflokkar hafa rétt til jafnlangs ræðutíma og forsetar gefa þingmönnum færi á að taka til máls þannig að flokkarnir skiptist á. Við útvarpsumræðu gilda ekki ákvæði 55. gr. um málfrelsi ráðherra. Rétt skal þingmönnum utan flokka að eiga þátt í útvarpsumræðum, þó þannig að enginn þeirra fái lengri tíma en helming þess er hver þingflokkur hefur til umráða og ekki skulu þingmenn utan flokka, ef fleiri eru en tveir, fá lengri tíma samanlagt við útvarpsumræðu en hver einstakur þingflokkur.

80. gr.

     Þegar útvarpað er umræðu um þingmál fær hver þingflokkur til umráða þrjátíu mínútur. Forseti getur, með samþykki allra þingflokka, ákveðið að ræðutími skuli vera annar.
     Þegar útvarpsumræðu um þingmál er lokið getur umræða haldið áfram eftir venjulegum reglum.
     Forseti ákveður í samráði við þingflokka tölu umferða og ræðutíma í einstökum umferðum. Það er umferð þegar fulltrúar allra þingflokka hafa tekið til máls og þeir þingmenn utan flokka sem þátt taka í umræðum.

81. gr.

     Óski útvarps- eða sjónvarpsstöð að útvarpa umræðu um þingmál beinir hún tilmælum sínum til forseta. Ef um er að ræða umræðu skv. 79. gr. ákveður forseti í samráði við þingflokkana hvort orðið skuli við tilmælunum.
     Ef útvarps- og sjónvarpsstöð óskar hins vegar að útvarpa venjubundinni umræðu eða hluta af umræðu ákveður forseti hvort það skuli leyft. Þegar útvarpað er umræðu á þennan hátt skal þess gætt að ræðutími skiptist sem jafnast milli flokka eða mismunandi sjónarmiða.

82. gr.

     Dag og stund útvarpsumræðu skal tilkynna í útvarpi og á þingfundi svo fljótt sem unnt er.

83. gr.

     Umræðum skal útvarpa í sömu röð og kröfur um útvarp bárust forseta enda sé að öðru leyti fullnægt ákvæðum þingskapa. Forseti getur þó vikið frá þessari röð ef sérstakar ástæður liggja til.

84. gr.

     Formenn þingflokka eru réttir aðilar gagnvart forseta og þingmönnum flokksins um allt það er að útvarpi umræðu lýtur.

85. gr.

     Forseti sker úr ágreiningi sem verður um skilning á reglum þessum um útvarp umræðu eða framkvæmd þeirra.

86. gr.

     Í þessum kafla er orðið útvarp notað um hljóðvarp og enn fremur um sjónvarp eftir því sem við á.
     Þar sem segir að útvarpa skuli, sbr. 73.–78. gr., er skyldan bundin við Ríkisútvarpið, hljóðvarp.

VII. ÝMISLEG ÁKVÆÐI

87. gr.

     Alþingi má ekki taka við neinu málefni nema einhver þingmanna eða ráðherra taki það að sér til flutnings, sbr. 55. gr. stjskr.

88. gr.

     Umræður á Alþingi, ásamt þingskjölum og atkvæðagreiðslum, skal prenta í Alþingistíðindum.
     Í Alþingistíðindunum má ekkert undan fella, það er þar á að standa og fram hefur komið í þinginu og gerðabækur þingsins og handrit af umræðum í þinginu bera með sér. Engar breytingar má gera á hvorugu þessu nema leiðrétta þurfi auðsæjar og sannanlegar villur. Engu má bæta inn í Alþingistíðindin, hvort sem það varðar menn eða málefni, nema þess sé óhjákvæmilega þörf eða í því felist sjálfsögð leiðrétting. Forseti getur sett nánari reglur um útgáfu Alþingistíðinda, frágang þingskjala o.fl.

89. gr.

     Ef þingmaður talar óvirðulega um forseta Íslands eða ber þingið eða ráðherra eða einhvern þingmann brigslyrðum eða víkur með öllu frá umtalsefninu skal forseti kalla til hans: „Þetta er vítavert“, og nefna þau ummæli sem hann vítir. Nú er þingmaður víttur tvisvar á sama fundi og má þá forseti, með samþykki fundarins, svipta þingmanninn málfrelsi á þeim fundi.

90. gr.

     Eftir uppástungu forseta eða formanns þingflokks má bregða út af þingsköpum þessum ef tveir þriðju hlutar þeirra þingmanna, er um það greiða atkvæði, samþykkja.

91. gr.

     Lög þessi öðlast gildi samtímis stjórnarskrárbreytingu þeirri sem samþykkt er á Alþingi sumarið 1991 og falla þá jafnframt úr gildi lög nr. 52 1985, um þingsköp Alþingis. Enn fremur falla úr gildi 3. og 4. mgr. 130. gr. laga um kosningar til Alþingis, nr. 80/1987.

Ákvæði til bráðabirgða.
     Þegar lög þessi, ásamt stjórnarskipunarlögum um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, með síðari breytingum, hafa öðlast gildi fellur niður umboð embættismanna þingsins og þingnefnda. Skal þá aldursforseti Alþingis boða til þingfundar og standa fyrir kosningu kjörbréfanefndar og forseta Alþingis sem gengst síðan fyrir kosningu varaforseta og fastanefnda samkvæmt ákvæðum laga þessara.

Samþykkt á Alþingi 31. maí 1991.