[prenta uppsett í dálka]
Hægt er að sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um uppsetningu á Netscape fyrir Word Perfect skjöl.]


Þingskjal 264, 120. löggjafarþing 204. mál: framleiðsla og sala á búvörum (frestun greiðslumarks).
Lög nr. 121 30. nóvember 1995.

Lög um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.

1. gr.
     Í stað „1. desember 1995“ í A-lið ákvæðis til bráðabirgða með lögunum, sbr. 1. gr. laga nr. 117/1995, kemur: 6. desember 1995.

2. gr.
     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 30. nóvember 1995.