Ađrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.
Ţingskjal 1340, 127. löggjafarţing 582. mál: tryggingagjald o.fl. (reiknađ endurgjald, breyting ýmissa laga o.fl.).
Lög nr. 65 2. maí 2002.
Lög um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, lögum nr. 45/1987, um stađgreiđslu opinberra gjalda, og lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóđa, međ síđari breytingum.
I. KAFLIBreyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, međ síđari breytingum.
1. gr. Viđ 1. mgr. 6. gr. laganna bćtist nýr málsliđur, svohljóđandi: Til stofns telst enn fremur endurgjald sem ber ađ reikna manni sem vinnur viđ atvinnurekstur lögađila ţar sem hann er ráđandi ađili vegna eignar- eđa stjórnunarađildar.
II. KAFLIBreyting á lögum nr. 45/1987, um stađgreiđslu opinberra gjalda, međ síđari breytingum.
2. gr. Viđ 6. gr. laganna bćtast tvćr nýjar málsgreinar, svohljóđandi:
Skattstjóri skal tilkynna launagreiđanda sem leggur fram áćtlun um tekjur sínar í samrćmi viđ tímafrest 1. mgr. eđa 1. mgr. 19. gr. um ákvörđun reiknađs endurgjalds eigi síđar en 15 dögum fyrir eindaga, sbr. 3. mgr. 20. gr. Ákvörđun skattstjóra skv. 1. málsl. eđa áćtlun skattstjóra skv. 21. gr. um greiđsluskylda fjárhćđ, sbr. 1. mgr., má skjóta til skattstjóra innan 15 daga frá póstlagningardegi tilkynningar. Innan 15 daga frá lokum kćrufrests skal skattstjóri hafa úrskurđađ kćrur.
Kćruúrskurđi skattstjóra skv. 3. mgr. má skjóta til ríkisskattstjóra innan 15 daga frá dagsetningu úrskurđar skattstjóra, sem tekur endanlega ákvörđun um fjárhćđ endurgjalds á stađgreiđsluári.
3. gr. 1. mgr. 19. gr. laganna orđast svo:
Hver sá sem telst launagreiđandi skv. 7. gr. skal ótilkvaddur og eigi síđar en 8 dögum áđur en starfsemi hans hefst tilkynna ríkisskattstjóra um starfsemi sína ţar sem tilgreint er nafn, heimili og kennitala launagreiđandans.
III. KAFLIBreyting á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóđa, međ síđari breytingum.
4. gr. Á eftir orđunum „sjálfstćđa starfsemi“ í 6. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna kemur: eđa vegna vinnu hans viđ atvinnurekstur lögađila ţar sem hann er ráđandi ađili vegna eignar- eđa stjórnunarađildar.
5. gr. Eftirfarandi breytingar verđa á 36. gr. laganna:
- a.
- Á eftir orđinu „(OECD)“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: og Liechtenstein.
- b.
- Á eftir orđinu „OECD“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: eđa Liechtenstein.
- c.
- Á eftir orđinu „OECD“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: eđa Liechtenstein.
IV. KAFLIGildistaka laganna.
6. gr. Lög ţessi öđlast ţegar gildi.
Samţykkt á Alţingi 22. apríl 2002.