Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.
Þingskjal 1182, 138. löggjafarþing 229. mál: vátryggingastarfsemi (heildarlög, EES-reglur).
Lög nr. 56 10. júní 2010.
Fjárhæð sem reiknuð er skv. 1. mgr. þessa töluliðar skal skipt í tvennt, þannig að fyrri hlutinn nemi allt að 50 milljónum evra og sá síðari því sem umfram er. Fjárhæð þessi skal taka árlegum breytingum með þeim hætti sem lýst er í 4. mgr. 34. gr. Leggja skal saman 18% af fyrri hlutanum og 16% af því sem umfram er. Niðurstaða þeirrar samlagningar er síðan margfölduð með hlutfallinu milli samanlagðra eigin tjóna síðustu þriggja reikningsára og samanlagðra tjóna í heild síðustu þrjú reikningsár samkvæmt rekstrarreikningi, en þó aldrei með lægri tölu en 0,5. Við útreikning á eigin tjónum er endurtryggingafélagi heimilt að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins að draga frá kröfur á félög með sérstakan tilgang.
Fjárhæð sem reiknuð er skv. 1. mgr. þessa töluliðar skal skipt í tvennt, þannig að fyrri hlutinn nemi allt að 35 milljónum evra og sá síðari því sem umfram er. Fjárhæð þessi skal taka árlegum breytingum með þeim hætti sem lýst er í 4. mgr. 34. gr. Leggja skal saman 26% af fyrri hlutanum og 23% af því sem umfram er. Útkoma þeirrar samlagningar er síðan margfölduð með hlutfallinu milli samanlagðra eigin tjóna síðustu þriggja reikningsára og samanlagðra tjóna í heild síðustu þrjú reikningsár samkvæmt rekstrarreikningi, en þó aldrei með lægri tölu en 0,5. Við útreikning á eigin tjónum er endurtryggingafélagi heimilt að fengnu samþykki Fjármálaeftirlitsins að draga frá kröfur á félög með sérstakan tilgang.