Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1062, 146. löggjafarþing 116. mál: fyrirtækjaskrá (aukinn aðgangur að fyrirtækjaskrá).
Lög nr. 64 14. júní 2017.

Lög um breytingu á lögum um fyrirtækjaskrá, nr. 17/2003, með síðari breytingum (aukinn aðgangur að fyrirtækjaskrá).


1. gr.

     Við 2. mgr. 8. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Engin gjaldtaka skal þó vera fyrir rafræna uppflettingu í skránni og skulu allar upplýsingar birtast í rafrænni uppflettingu.

2. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2018.

Samþykkt á Alþingi 1. júní 2017.