Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 441, 152. löggjafarþing 161. mál: staðfesting ríkisreiknings.
Lög nr. 10 23. febrúar 2022.

Lög um staðfestingu ríkisreiknings 2020.


1. gr.

Staðfesting ríkisreiknings.
     Með lögum þessum staðfestist ríkisreikningur fyrir árið 2020, sbr. 58. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.

2. gr.

Gildistaka.
     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 3. febrúar 2022.