14.11.2008

Ársfundur NATO-þingsins 14.-18. nóvember

NATO-þingið kemur saman til ársfundar í Valencia dagana 14.-18. nóvember. Þar verða tekin til umræðu málefni sem eru ofarlega á baugi innan Atlantshafsbandalagsins eins og framtíðarstefna bandalagsins, yfirstandandi aðgerðir NATO í Afganistan, samskiptin við Rússland og átökin í Georgíu, eldflaugavarnir, orkuöryggi og leiðir til að hefta útbreiðslu kjarnorkuvopna.

Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja ársfundinn þau Ragnheiður E. Árnadóttir formaður, Ásta R. Jóhannesdóttir og Magnús Stefánsson.