Norrænn undirbúningsfundur fyrir 126. þing Alþjóðaþingmannasambandsins
Norrænn undirbúningsfundur fyrir 126. þing Alþjóðaþingmannasambandsins verður haldinn í Reykjavík fimmtudaginn 15. mars.
Helstu umræðuefni fundarins verða m.a. aðgengi, einkum kvenna og barna, að heilbrigðisþjónustu dreifing valds en ekki eingöngu auðs í heiminum og lærdómur sem draga má af atburðum síðustu mánaða í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku.
Fundinn sækja fyrir hönd Íslandsdeildar, Þuríður Backman, formaður, Árni Páll Árnason, varaformaður og Einar K. Guðfinnsson.