Þingmannaráðstefna um sameiginlega utanríkis- og öryggismálastefnu ESB í Aþenu 3.–4. apríl
Þingmannaráðstefna um sameiginlega utanríkis- og öryggismálastefnu ESB fer fram í Aþenu 3.–4. apríl 2014. Ráðstefnan er haldin tvisvar á ári í þeim aðildarríkjum ESB sem fara með sex mánaða formennsku í ráðherraráði sambandsins.
Meðal þess sem rætt verður á þingmannaráðstefnunni er ástandið í Úkraínu, þróun mála í Miðausturlöndum og öryggi á nærsvæðum ESB til suður og austurs frá sjónarhóli Grikkja. Catherine Ashton, utanríkismálastjóri ESB, og Evangelos Venizelos, utanríkisráðherra Grikklands, eru meðal þeirra sem ávarpa ráðstefnuna.
Af hálfu utanríkismálanefndar Alþingis taka þátt í ráðstefnunni Birgir Ármannsson formaður, Árni Þór Sigurðsson, Óttarr Proppé og Silja Dögg Gunnarsdóttir.