67. þingi Norðurlandaráðs lokið
67. þingi Norðurlandaráðs sem stóð frá 27.-29.október í Reykjavík er lokið. Fundargerð þingsins er á vef Norðurlandaráðs, þar eru jafnframt, upptökur af fundinum, fréttir af þinginu og myndabanki.
Fulltrúar á þinginu voru forsætisráðherrar, aðrir ráðherrar og þingmenn frá öllum norrænu ríkjunum og sjálfstjórnarsvæðunum. Íslandsdeild Norðurlandaráðs skipa: Höskuldur Þórhallsson, formaður, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, varaformaður, Elín Hirst, Róbert Marshall, Steingrímur J. Sigfússon, Valgerður Gunnarsdóttir og Vigdís Hauksdóttir.