10.3.2015

Forseti Alþingis heimsækir Litháen

Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, verður viðstaddur athöfn í litháíska þinginu miðvikudaginn 11. mars 2015 í tilefni þess að 25 ár eru frá því að þingið samþykkti sjálfstæðisyfirlýsingu landsins þann dag árið 1990.
Til viðburðarins er meðal annars boðið forsetum þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, auk annarra gesta.