17.10.2014

Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2015

Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota tímabilið 7. janúar til 15. desember 2015.
Allar nánari upplýsingar og sérstök eyðublöð er að finna á heimasíðu Jónshúss.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en mánudaginn 10. nóvember næstkomandi.