1.6.2005

Forseti Alþingis í vinnuheimsókn í Skotlandi 2.-3. júní 2005

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, heimsækir Skotland 2.-3. júní í boði skoska þingforsetans til að kynna sér starfshætti skoska þingsins. Með þingforseta í för verða alþingismennirnir Einar K. Guðfinnsson, Össur Skarphéðinsson og Ögmundur Jónasson og forstöðumaður þingfundasviðs skrifstofu Alþingis.
 
Sendinefndin mun eiga fundi með George Reid, forseta skoska þingsins, hitta fulltrúa frumkvöðla- og menningarnefndar þingsins og umhverfis- og landsbyggðarmálanefndar þess. Íslensku þingmennirnir munu einnig hitta starfsbræður sína sem sæti eiga í nefnd er fjallar um stöðu gelískrar tungu og ræða við fulltrúa úr sveitarstjórna- og samgöngunefnd skoska þingsins. Enn fremur eru heimsóknir í menningarstofnanir á dagskrá sendinefndarinnar.
 
Nánari upplýsingar um heimsóknina fást hjá almannatengsladeild í síma 563 0622 eða á alþjóðasviði í síma 563 0750.