Opinber heimsókn Per Westerbergs, forseta sænska þingsins
Forseti sænska þingsins mun ræða við forseta Alþingis og eiga fund með starfshópi utanríkismálanefndar um Evrópumál. Gert er ráð fyrir að hann hitti Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Jafnframt mun forseti sænska þingsins eiga fund með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands.
Fulltrúum fjölmiðla er boðið að vera við upphaf heimsóknar sænska þingforsetans í Alþingishúsinu fimmtudaginn 15. október kl. 09.30. Þá gefur Per Westerberg, forseti sænska þingins, einnig kost á viðtölum í Alþingishúsinu sama dag, 15. október, eftir kl. 16.00. Fréttamenn sem áhuga hafa á viðtali eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu Alþingis fyrir mánudaginn 12. október nk.
Tengiliður vegna viðtala er Arna Björk Jónsdóttir upplýsingafulltrúi. Sími Örnu er 563 0657 og netfang arnabjork@althingi.is.