Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúð fræðimanns á 4. hæð hússins árið 2017.
Nefndinni bárust að þessu sinni umsóknir um dvöl til að sinna 23 verkefnum. Úthlutað var dvalartíma til að vinna að 10 verkefnum:
Auður H. Ingólfsdóttir, til að vinna verkefni um sjálfbærni á Norðurlöndum;
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, til að vinna verkefni sem ber heitið „Á vindanna vængjum. Jarðreisa Sæmundar Magnússonar Hólm“;
Haukur Þorgeirsson, til að vinna verkefni sem snýr að handriti Snorra Eddu;
Hjörleifur Stefánsson, til að vinna verkefni um torfhúsabæinn Reykjavík, híbýli leiguliða og tómthúsmanna;
Hörður Geirsson, til að vinna verkefni um ferðir ljósmyndarans Johan Holm-Hansen á Íslandi 1866 og 1867;
Illugi Jökulsson, til að vinna verkefni sem ber heitið „Maðurinn sem vildi vera biskup. Sjálfsævisaga Ólafs Gíslasonar“;
Íris Ellenberger, til að vinna verkefni um mót innlendrar og erlendrar menningar í Reykjavík 1900-1920;
Jónína Einarsdóttir, til að vinna verkefni um sumardvöl barna í sveit;
Sverrir Jakobsson, til að vinna verkefni um Væringja í Austurvegi;
Þórunn Sigurðardóttir, til að vinna að rannsóknum á handritinu „Rask88a“.
Í úthlutunarnefndinni eiga sæti dr. Ágúst Einarsson, prófessor og fyrrverandi rektor við Háskólann á Bifröst, sem er formaður nefndarinnar, dr. Anna Soffía Hauksdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, og dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor við Háskólann á Akureyri. Ritari nefndarinnar er Jörundur Kristjánsson, forstöðumaður skrifstofu forseta Alþingis.